---
title: "Teams – Hvar vistast upptökur"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4520738818/Teams%20%E2%80%93%20Hvar%20vistast%20uppt%C3%B6kur"
format: markdown
---
Þessar leiðbeiningar útskýra hvar upptökur úr **Microsoft Teams** vistast og hverjir hafa aðgang að þeim.

## Helstu atriði í stuttu máli

- Upptakan vistast í **OneDrive skipuleggjanda** ef fundur er einkafundur, en í **SharePoint** ef fundur er í Teams-rás.
- **Boðaðir þátttakendur innan stofnunar **hafa sjálfgefinn skoðunaraðgang, óháð því hvort þeir mættu.
- **Gestir og utanaðkomandi** fá aðeins aðgang ef upptökunni er deilt sérstaklega með þeim.
- Aðgangsstýringar og varðveisla fylgja reglum **OneDrive **og** SharePoint**, eins og með aðrar skrár í Microsoft 365.
- **Tengill á upptökuna** birtist í:
  - **Spjalli fundarins**
  - Teams-dagatali undir **Recordings and Transcripts**
  - Skráarlistum í Microsoft 365 t.d. **Shared with me**, **Recommended **og **Recent**

## Munur á símtali, hópsímtali, skipulögðum fundi og rásarfundi

- **1:1 símtal** er beint samtal milli tveggja aðila í Teams, ekki boðað í dagatali. Upptaka vistast í OneDrive þess sem ýtir á Record. Sá aðili er eigandi skrárinnar.
- **Hópsímtal** er óformlegt samtal milli fleiri en tveggja, ekki tengt dagatali eða rás. Upptaka vistast í OneDrive þess sem hóf upptöku og viðkomandi er eigandi.
- **Skipulagður fundur** er fundur sem er boðaður í gegnum dagatal, annað hvort stakur eða reglulegur. Hann tilheyrir skipuleggjanda. Upptaka vistast í OneDrive skipuleggjanda, óháð því hver ýtir á Record.
- **Rásarfundur** er fundur sem er tengdur ákveðinni Teams-rás. Hann tilheyrir teyminu fremur en einstaklingi. Upptaka vistast í SharePoint safni rásarinnar og aðgangur ræðst af aðild að rásinni.

## Yfirlit yfir upptökur eftir tegund fundar

| **Tegund fundar** | **Hver ýtir á Record** | **Hvar vistast upptakan** | **Eigandi skrár** | **Sjálfgefinn aðgangur** |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| 1:1 símtal innan stofnunar | Innri notandi | OneDrive þess sem hóf upptöku | Upptökuaðili | Hinn aðilinn fær sjálfgefna deilingu, yfirleitt með edit-réttindum |
| 1:1 símtal við utanaðkomandi | Innri notandi | OneDrive þess sem hóf upptöku | Upptökuaðili | Enginn sjálfvirkur aðgangur fyrir utanaðkomandi nema sérstaklega sé deilt |
| Hópsímtal, ekki rásarfundur | Innri þátttakandi | OneDrive þess sem hóf upptöku | Upptökuaðili | Aðrir innri þátttakendur fá sjálfgefna deilingu, gestir ekki. |
| Skipulagður fundur, ekki rásarfundur | Hvaða innri þátttakandi sem er | OneDrive skipuleggjanda | Skipuleggjandi | Upptökuaðili og meðskipuleggjendur hafa full réttindi, aðrir innri fá sjálfgefna deilingu, gestir ekki. |
| Skipulagður fundur með utanaðkomandi | Hvaða innri þátttakandi sem er | OneDrive skipuleggjanda | Skipuleggjandi | Innri þátttakendur fá sjálfgefna deilingu, utanaðkomandi ekki nema sérstaklega sé deilt. |
| Rásarfundur | Meðlimur rásar | SharePoint safn rásarinnar | SharePoint safn rásarinnar, | Allir með aðgang að rás. |