---
title: "Notkun á Milestone myndavélakerfi"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4502159370/Notkun%20%C3%A1%20Milestone%20myndav%C3%A9lakerfi"
format: markdown
---
Þegar búið er að ræsa forritið og skrá inn notanda er hægt að horfa á myndavélar, horfa á sjúklingaskjá, hlusta á hljóðnema og tala í hátalarann í stofunni. Athugið að eingöngu er hægt að hlusta á einn hljóðnema í einu. Það er hægt að velja eina myndavél til að horfa á, eða sniðmáta þar sem hægt er að raða inn myndavélum og skjám eftir hentugleika. Einnig er hægt að velja fyrirfram ákveðinn sniðmáta þar sem þær myndavélar, hljóðnemar og sjúklingaskjáir sem tilheyra því rými sem verið er að vinna í eru fyrirfram uppraðaðir. Ef myndavél er hreyfanleg, þá birtast örvar í neðra hægra horni myndavélarinnar. Þá er hægt að hreyfa viðkomandi myndavél til með músinni eða með því að smella á ör í þá átt sem myndavélin á að færast í.

![image-20240705-134734.png](media://94e816d8-0ca2-4a85-8cb2-127867afc4f1)