---
title: "Grábrók - Taka upp hlaðvarp"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4438163459/Gr%C3%A1br%C3%B3k%20-%20Taka%20upp%20hla%C3%B0varp"
format: markdown
---
Þessar leiðbeiningar sýna hvernig þú undirbýrð búnað í podcastklefanum **Grábrók**, skráir þig inn á **Borg Hlaðvörp** og tekur upp og að lokum hvernig þú gengur frá og skráir þig út. Upptökur verða svo  aðgengilegar innskráðum notanda inni á [borg.unak.is/studio/podcasts](http://borg.unak.is/studio/podcasts).

<details>
<summary>Hvernig bóka ég tíma í Grábrók</summary>

- Nú er hægt að bóka Grábrókar-hljóðklefann fram í tímann inni í Borg, í stað þess að mæta og vona að hann sé laus. Inni á [borg.unak.is/grabrok/boka](https://borg.unak.is/grabrok/boka) sú sérð hvað er laust, velur tíma og bókunin er þín.
- Eitt sem er rétt að vita: skjárinn á veggnum við klefann sýnir enn dagatal háskólans, ekki bókanirnar úr Borg. Þau tvö tala ekki saman ennþá. Bókanir sem gerðar eru í Borg gilda, en birtast ekki á veggskjánum, svo það borgar sig að treysta Borg en ekki skjánum á meðan.
</details>

### Búnaður í klefanum

- 2 hljóðnemar
- Mixer
- Tölva
- 2 stólar og borð

![IMG_20260120_154817.jpg](media://73c8c8e8-a545-4949-af31-040445205fff)

## 📘 Leiðbeiningar

### Skref 1: Kveikja á búnaði

1. Kveiktu á ljósum, rofarnir vinstramegin við inngang.

> ℹ️ Hægt er að dimma ljós með því að halda ljósarofanum inni.

2. Kveiktu á upptökuljósi og viftu með tökkunum við hliðina á mixer.

> ℹ️ Viftan slekkur sjálfkrafa á sér eftir 60 mínútur. Ýtið aftur á takkann til að kveikja á henni.

4. Settu sleða 1 upp (appelsínugult ljós) til að nota appelsínugula hljóðnemann og sleða 3 upp (blátt ljós) til að nota bláa hljóðnemann.

> ⚠️ Athugið að slökkt sé á græna og rauða takkanum fyrir neðan sleðana áður en upptaka hefst.
> ⚠️ 
> ⚠️ ![image-20260826-142551.png](media://94bff7a4-dd73-4847-af9c-36acd5a9cf6c)

5. Stilltu hljóðnemana þannig að þeir séu í um það bil eina lófafjarlægð frá munni (ca. 10 cm).

> ℹ️ Athugaðu hvort grænu línurnar á mixernu hreyfast þegar talað er í hljóðnemana áður en þú byrjar upptökuna.

### Skref 2: Innskráning

1. Skráðu þig inn á** Grábrók **í tölvunni með því að skanna **QR kóðann** og **Tengjast klefanum** eða smelltu á **Taka upp sem gestur**:

![image-20260826-144158.png](media://cbeb3fae-4013-4dc6-96be-b84cb3b3484f)


### Skref 3: Upptaka

1. Gefðu upptökunni **nafn **og smelltu á **rauðu takkan** til að hefja upptöku:

![image-20260826-143427.png](media://82c9925f-968c-4ecb-98a2-bad6de447e9e)

> ⚠️ Athugið að viðvörun birtist á upptökuvélinni ef hún greinir ekkert hljóð í smá stund. Þetta getur til dæmis gerst ef gleymst hefur að færa sleðana á mixernum upp eða ef mjög hljóðlátt er í klefanum.
> ⚠️ 
> ⚠️ ![image-20260826-135856.png](media://6f6d3c2d-b254-4d03-80ca-30fdfebf6d84)

2. Smelltu á **Stöðva og vista **til að hætta upptöku, upptakan verður aðgengileg inni á [https://borg.unak.is/studio/podcasts](https://borg.unak.is/studio/podcasts) hjá innskráðum notanda.

![image-20260826-140256.png](media://b31d75c1-2439-445a-8556-30703e02d5ee)

> 📝 Ef þú skráðir þig inn á gesta aðgang skaltu skanna **QR kóðann** til að ná í upptökuna eða slá inn **netfang **og ýta á **Senda** til að fá tengil á upptökuna.
> 📝 
> 📝 ![image-20260826-144031.png](media://e0aa007b-8ce0-4063-8692-319035f35aed)


### Skref 4: Frágangur

- [x] Dragðu sleða niður á mixer.
- [x] Slökktu á upptökuljósi (slökkt er á ljósi í rofa þegar sllökkt er á upptökuljósi).
- [x] Slökktu á loftljósum.
- [x] **Ekki **þarf að slökkva á tölvu, mixer eða viftu.
- [x] Taka allt rusl og henda.
- [x] Ýtu á aflæsingartakka **(UNLOCK DOOR) **við hurðina áður en opnað er.
- [x] Lokaðu dyrinni að lokinni notkunn.


##  Algengar spurningar

<details>
<summary>Stillingar á mixer</summary>

Þú þarft ekki að breyta neinum stillingum í mixernum. Ef þú telur að stillingum hafi verið breytt, hafðu samband við **Þjónustuborð KHA** og biddu þau um að endurstilla stillingar.
</details>

## \uD83D\uDCCB Tengdar síður

  


> Macro (contentbylabel)