---
title: "Menntaský – Innskráning í vefviðmót Microsoft 365"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4396089346/Menntask%C3%BD%20%E2%80%93%20Innskr%C3%A1ning%20%C3%AD%20vefvi%C3%B0m%C3%B3t%20Microsoft%20365"
format: markdown
---
Hér sérðu hvernig þú skráir þig inn í vefviðmót **Microsoft 365** með Menntaskýs aðgangi og hvað þú getur prófað ef innskráning tekst ekki.

### Áður en þú byrjar

- Hafðu skólanetfang og lykilorð við höndina.
- Vertu með símann þinn til að staðfesta tveggja þátta auðkenningu (2FA).

### Slóðir fyrir innskráningu

- [365.unak.is](http://365.unak.is)
- [office.unak.is](http://office.unak.is)

> 📝 Einnig er hægt að skrá sig inn á [portal.office.com](http://portal.office.com) en til að komast í öll forrit þarf þá að smella á **Apps **í stikunni vinstra megin til að komast í öll forritin:
> 📝 
> 📝 ![image-20260107-155213.png](media://9ec7549c-b64e-48b9-bfc4-53aaf2ff78d2)

<details>
<summary>Beinar slóðir á vefforrit</summary>

| **Forrit** | **Bein slóð** |
| --- | --- |
| **Outlook** | <u>[https://outlook.office.com](https://outlook.office.com/)</u> |
| **Teams** | <u>[https://teams.microsoft.com](https://teams.microsoft.com/)</u> |
| **Word** | <u>[https://word.cloud.microsoft](https://word.cloud.microsoft/)</u> |
| **Excel** | <u>[https://excel.cloud.microsoft](https://excel.cloud.microsoft/)</u> |
| **PowerPoint** | <u>[https://powerpoint.cloud.microsoft](https://powerpoint.cloud.microsoft/)</u> |
| **OneNote** | <u>[https://onenote.office.com](https://onenote.office.com/)</u> |
| **OneDrive** | <u>[https://m365.cloud.microsoft/onedrive](https://m365.cloud.microsoft/onedrive)</u> |
| **SharePoint** | <u>[https://reiknistofnun.sharepoint.com/](https://reiknistofnun.sharepoint.com/)</u> |
| **Forms** | <u>[https://forms.office.com](https://forms.office.com/)</u> |
| **Planner** | <u>[https://tasks.office.com](https://tasks.office.com/)</u> |
| **Bookings** | <u>[https://book.ms](https://book.ms/)</u> |
| **Whiteboard** | <u>[https://whiteboard.microsoft.com](https://whiteboard.microsoft.com/)</u> |
</details>


### Skráðu þig inn

1. Opnað vafra og skráðu þig inn á [365.unak.is](http://365.unak.is) eða [office.unak.is](http://office.unak.is).   
‎
2. Sláðu inn **skólanetfangið** þitt og smelltu á **Next**.
  
3. Sláðu inn **lykilorðið** og smelltu á **Sign in**.
  
4. Samþykktu tveggja þátta auðkenningu (t.d. í Microsoft Authenticator eða með SMS).

### Algeng vandamál

<details>
<summary>Sorry, but we're having trouble signing you in - AADSTS90072</summary>

Stundum reynir tölvan að skrá notendur inn sjálfvirkt, en þá getur hún valið rangan aðgang. Til að koma í veg fyrir það er best að [hreinsa skyndiminni og vefkökur](https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3027533865/Hreinsa+vafra+(Cache+and+Cookies)) (cache og cookies) í vafranum og reyna síðan aftur.  
  
Önnur lausn á þessu vandamáli er að nota sér [vafra eða prófíl](https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3038806085/Fleiri+en+einn+Microsoft+a%C3%B0gangur+%2F+Multiple+Microsoft+Accounts) fyrir hver Microsoft aðgang.

![image-20260109-140619.png](media://a290a9d6-ce95-4f6c-be88-69927691b919)
</details>

<details>
<summary>Sorry, but we're having trouble signing you in - AADSTS50105</summary>

Villan **AADSTS50105** kemur upp þegar notandi reynir að skrá sig inn án þess að vera með virkt leyfi eða réttan aðgang að viðkomandi þjónustu. Þetta getur gerst ef leyfi vantar, er útrunnið eða hefur ekki verið úthlutað á reikninginn.

Vinsamlegast sendu [beiðni á þjónustuborðið](https://hjalp.unak.is/?createRequest=true&portalId=5&requestTypeId=50) og sendu með skjáskot af villunni, svo hægt sé að yfirfara og virkja viðeigandi leyfi.

![image-20260109-143447.png](media://d022e54d-6122-4e09-98ff-24f40403d962)

> ℹ️ Villan kemur einnig upp ef notandi reynir að skrá sig inn í kerfi eins og Uglu eða Canvas með Menntaskýs netfangi frá stofnun sem hefur ekki aðgang að kerfinu.
</details>

## Tengdar greinar



> Macro (contentbylabel)