---
title: "Ferðabeiðnir"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4203970570/Fer%C3%B0abei%C3%B0nir"
format: markdown
---
Þessar leiðbeiningar sýna hvernig þú sendir ferðabeiðni í **Ferðabeiðnakerfi HA** í **Orra. **Athugaðu að þegar ferðabeiðni hefur verið **samþykkt **í ferðabeiðnakerfi Orra þarf að fylla út **[bókunarbeiðni](https://hjalp.unak.is/?createRequest=true&portalId=8&requestTypeId=91)**** **ef óskað er eftir því að Þjónustuborð nemendaskrár bóki flug, bílaleigubíl eða hótel fyrir ferðalang. 

- Beiðnir skulu almennt fylltar út með **góðum fyrirvara**, helst að lágmarki **tveimur vikum** fyrir brottför.
- Við val á **gistingu**, erlendis og innanlands, er lögð áhersla á að velja staði með **umhverfisvottun **á borð við Svaninn, Evrópublómið, Græna lykilinn (Green Key), gullmerki Vakans, ISO14001 eða sambærilega vottun.

> ℹ️ ATH tölvan þarf að vera **snúru tengd** eða með kveikt á **VPN** til að komast inn í **Ferðabeiðnakerfi HA** í Orra.

> ℹ️ **Þjónustuborð nemendaskrár **og **skrifstofustjórar** fræðasviða veita aðstoð og upplýsingar auk verkefnastjóra bókhalds og ferðareikninga, Kristín Elfa Bragadóttir ([kelfa@unak.is](mailto:kelfa@unak.is)).
> ℹ️ 
> ℹ️ Verkefnastjóri bókhalds og rannsóknarverkefna, Kristín Sigurðardóttir ([kristinsig@unak.is](mailto:kristinsig@unak.is)) veitir aðstoð og upplýsingar varðandi ferðabeiðnir vegna **rannsóknarverkefna.**

> ⚠️ Athugið að aðgangur verður óvirkur ef notandi skráir sig ekki inn í Orra í **90 daga**, ef það gerist þarf að hafa samband við [hjalp@fjs.is](mailto:hjalp@fjs.is) og óska eftir að aðgangur verði virkjaður aftur.

## 📘 Leiðbeiningar

### Fylla út ferðabeiðni:

Ferðabeiðni er skipt upp í nokkra hluta, **Ferðamaður**, **Ferð/Græn skref, Dagpeningar, Kostnaðarlínur o.s.frv. **Hér fyrir neðan er farið ýtarlega yfir hvern hluta.

<details>
<summary>Stofna nýja ferðabeiðni í Orra</summary>

- Skráðu þig inn á vefinn **[oebs.orri.is](http://oebs.orri.is)** með **rafrænum skilríkjum** eða **notendanafni **og lykilorði
  
- Smelltu á **línurnar þrjár** uppi í vinstra horninu og veldu **HA Ferðauppgjör** í fellilistanum og smelltu svo á **Ferðauppgjör**.
  
- Smelltu á **Ný beiðni **undir flipanum **Ferðabeiðnir.**
  
- Mikilvægt er að fylla út **alla stjörnumerkta **reiti og smella á **Vista** til að skila beiðni inn til samþykktar. Sjá nánari upplýsingar um hvern hluta hér að neðan.
  
- Þegar ferðabeiðni hefur verið send til samþykktar fær hún **FB númer sem mikilvægt er að skrá í bókunarbeiðni** ef bóka þarf flug, bíl eða gistingu.

> 📝 Þegar ferðabeiðni hefur verið **samþykkt **í ferðabeiðnakerfi Orra þarf að fylla út **bókunarbeiðni **ef óskað er eftir því að Þjónustuborð nemendaskrár bóki flug, bílaleigubíl eða hótel.
> 📝 
> 📝 **Bókunarbeiðni **má finna inn á [Þjónustugátt HA > Beiðnir > Ferðabeiðnir > Bókunarbeiðnir](https://hjalp.unak.is/?createRequest=true&portalId=8&requestTypeId=91)
</details>

<details>
<summary>Ferðamaður</summary>

- Skráðu inn **kennitölu **ferðalangs, án bandstriks, og ýtið á **TAB **takkann til að fá upp nafn, heimilisfang, bankaupplýsingar o.fl. Mikilvægt er að skrá inn** allar upplýsingar** sem kann að vanta, þetta á sérstaklega við ef verið er að skrá inn ferðamann **utan stofnunar**.

> 📝 Ef ferðalangur er **ekki með kennitölu** þarf að fylla út sérstaka beiðni: [Kennitölulaus ferðabókun](https://hjalp.unak.is/?createRequest=true&portalId=8&requestTypeId=507)
</details>

<details>
<summary>Ferð / Græn skref</summary>

- **Samykkjandi: **Veldu samþykkjanda með því að smella á stækkunarglerið. Veldu **næsta yfirmann** eða annan samþykkenda ef við á.

> 📝 - Samþykkjendum er **ekki heimilt **að samþykkja **eigin ferðabeiðnir**
> 📝 - **Deildarforseti **er samþykkjandi ferða á vegum viðkomandi deildar
> 📝 - **Skrifstofustjóri **er samþykkjandi ferða deildarforseta og sviðsforseta
> 📝 - **Kristín Sigurðardóttir **([kristinsig@unak.is](mailto:kristinsig@unak.is)), verkefnastjóri bókhalds og rannsóknarverkefna, er samþykkjandi ferðabeiðna vegna:
> 📝   - Ferða á vegum **rannsóknarreikninga.**
> 📝   - Ferða á vegum **rannsóknarleyfa.**
> 📝   - Ferða á vegum** Vísindasjóðs.**

- **Tilefni**: Veldu viðeigandi tilefni.
- **Viðfang: **Viðfang** **þeirrar starfseiningar sem starfsmaður er skráður á í launakerfinu kemur upp við skráningu. Ef kostnaður á að færast á **annað viðfang** er það valið með því að smella á stækkunarglerið.
  Í leitarglugganum sem kemur upp er hægt að leita eftir **viðfangsnúmeri **eða **nafni viðfangs**, einnig er hægt að fá upp öll viðföng með því að setja inn **%** og smella á **Leita** hnappinn

> 📝 ATH ef verið er að skrá inn **ferðamann utan stofnunar** er nauðsynlegt að velja viðfang.

- **Brottför**: Smelltu á dagatals merkið til að velja **brottfarardag**.
- **Koma**: Smelltu á dagatals merkið til að velja **komudag**.
- **Ferðastaður**: Skráðu áfangastað ferðar.
- **Græn skref**:  Veldu fjarfundarmöguleika og settu inn **rökstuðning **ef við á.
</details>

<details>
<summary>Dagpeningar</summary>

- Í **Teg.dagp.** er að öllu jöfnu valið „**Ekki dagpeningar**“ vegna ferða innanlands (sjá undantekningu undir **Dagpeningar innanlands**).
- Ef **dagpeningar erlendis** eiga að koma fram á beiðni skal velja „**Almennir dagpeningar**“ í **Teg.dagp**.
- Ef starfsmaður er að sækja um** dagpeninga í rannsóknarleyfi erlendis** velur hann „**Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa**“
- Upplýsingar um** *****Tímab. hefst, Tímab. endar, Terðadagar**** og ****Gistinætur ***koma sjálfkrafa upp þegar upplýsingar hafa verið skráðar í *“****Ferð****”.*

> 📝 Umsókn um **dagpeninga **verður ekki afgreidd nema **farseðill **fylgi með umsókn sem og **dagskrá **ráðstefnu og/eða staðfesting á öðrum fundum. Sjá nánar undir **Fylgigögn**.
</details>

<details>
<summary>Kostnaðarlínur</summary>

- Smella þarf á **græna plúsinn** undir kostnaðarlínum til að kostnaður skráist á beiðni.
- **Kostnaðartegund **er valin úr flettilista.
- Mikilvægt er að **allir kostnaðarliðir **séu settir inn.
- Ef starfsmaður ekur á eigin bíl velur hann „**starfsmannabifreið**“ og bætir við athugasemd neðst svo að samþykkjandi sjái að viðkomandi ætlar að keyra

- Setjið inn „**áfangastað**“.
- Kerfið reiknar út **dagpeningana**.
- Í hverri kostnaðarlínu sem búin er til kemur upp sama viðfang og valið var í upphafi undir *„****ferð****“*
- Ef viðfangi er breytt þarf einnig að breyta því undir *„****ferð****“*
- Mikilvægt er að skrá kostnað á tiltekna **vídd **ef við á
  - Ef um er að ræða **kostnað vegna kennslu** skal setja í **vídd 2** númerið **16012023 **sem er ferða & sérfræðikostnaður v/kennslu**.**
  - Ef um er að ræða styrk úr **Rannsóknarsjóði **skal setja R númer verkefnis í **vídd 1**.
- Greinargóð **lýsing **á ferð og tilgangi þarf að koma fram svo samþykkjandi ferðabeiðnar sjái hvað um ræðir.
  - Hér er t.d. sett skýring vegna aksturs á eigin bíl.
- Eigi annar aðili að taka þátt í kostnaði þarf að koma fram fullt **nafn **viðkomandi og **kennitala**.
- Ekki er tekið tillit til kostnaðar annarra í útreikningum á heildarkostnaði.
</details>

<details>
<summary>Fylgigögn</summary>

- Til að setja inn **viðhengi **er smellt á **bréfaklemmuna **efst í hægra horninu.
  

> 📝 **EKKI **þarf lengur að skila inn kvittun fyrri **bensíni/hleðslu** þegar ferðast er á eigin bíl.
</details>

<details>
<summary>Rökstuðningur / Athugasemdir</summary>

Það er ekki nauðsynlegt að setja skýringu í **Rökstuðningur **en nauðsynlegt að setja skýringu á ferð í **Innanhúss skýring**. Það er hægt að hengja við viðhengi hér eða nota klemmuna efst í hægra horni.

![image-20251024-150923.png](media://4c79eeeb-72f1-48b0-bf4e-75dbeb47bfcf)
</details>

<details>
<summary>Samtals / Þátttaka annarra í kostnaði</summary>

**Samtölur **reiknast út sjálfkrafa. Ef rukka á einhvern um kostnaðinn við ferð þarf að setja inn **skýringu **og **upphæð**.

![image-20251024-153123.png](media://737d3295-14e5-4851-8552-1f64ddf6b56c)
</details>

<details>
<summary>Senda til samþyktar / Villuprófa / Vista</summary>

- Hægt er að **Vista **beiðni áður en hún er send til samþykktar með takkanum neðst í hægra horninu á síðunni.
- Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar á ferðabeiðnina (kostnaður, rökstuðningur, samþykkjandi, rétt viðfang og vídd ef við á) er ágætt að **Villuprófa **til að kanna hvort gleymst hafi að skrá inn í skyldusvæði.
- Til að senda beiðni smellir þú á **Senda til samþykkar** neðst til hægri á síðunni:
</details>

<details>
<summary>Uppgjör</summary>

- Skila þarf inn gögnum **innan 30 daga** frá heimkomu
- Ef ferð er lokið þarf að vista afrit af **reikningum fyrir útlögðum kostnaði**, inn í ferðabeiðnina
  - Gjaldkeri afgreiðir í framhaldinu endurgreiðslu kostnaðar
- 30 dögum eftir heimkomu **lokast ferðabeiðni **og kostnaður verður **ekki endurgreiddur** ef reikningar og kvittanir berast eftir þann tíma
- Dagpeningar eru** greiddir fyrir brottför** sé ferðabeiðni samþykkt með góðum fyrirvara og viðeigandi gögnum skilað
</details>


### Senda bókunarbeiðni á Þjónustuborð nemendaskrár

<details>
<summary>Senda bókunarbeiðni</summary>

Þegar ferðabeiðni hefur verið **samþykkt **í ferðabeiðnakerfi Orra þarf að fylla út **bókunarbeiðni **ef óskað er eftir því að Þjónustuborð nemendaskrár bóki flug, bílaleigubíl eða hótel.

Bókunarbeiðni má finna inn á [Þjónustugátt HA > Beiðnir > Ferðabeiðnir > Bókunarbeiðnir](https://hjalp.unak.is/?createRequest=true&portalId=8&requestTypeId=91)

![image-20251022-144943.png](media://85bc22d5-ab83-4f5f-973e-44b0184f2c4d)
</details>


### **Algengar spurningar og svör**

<details>
<summary>💡 Almennar spurningar</summary>


</details>

<details>
<summary>💰 Kostnaður, endurgreiðslur og afbókannir</summary>


</details>

<details>
<summary>⚙️ Stillingar í Orra</summary>


</details>

 


## \uD83D\uDCCB Tengdar síður

  


> Macro (contentbylabel)