---
title: "Gátlisti fyrir viðburði"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4193714208/G%C3%A1tlisti%20fyrir%20vi%C3%B0bur%C3%B0i"
format: markdown
---
Hér höfum við tekið saman einfaldan gátlista, athugið að hann er ekki endilega tæmandi, en hann hjálpar þér við undirbúning og gerir ferlið skilvirkara. 

Undirbúningur 

- Hef ég haft samband við Markaðs- og kynningarmál til að fá ráðgjöf?

- Ætla ég að nýta þjónustu RHA?

Aðgengi og tæknileg atriði 

- Á ráðstefnan að vera eingöngu á staðnum, í upptöku eða í streymi?
- Er ráðstefnan utan almenns opnunartíma?

- Hef ég valið hentugt rými fyrir streymi/upptöku?

- Hef ég bókað rými hjá Rekstri fasteigna?

- Hef ég fengið samþykki allra fyrirlesara fyrir upptöku/streymi?

- Hef ég látið gesti vita um mögulegar upptökur?

- Hef ég pantað aðstoð og streymishlekki hjá KHA tímanlega?

Framkvæmd á streymi/upptöku 

- Eru fyrirlesarar meðvitaðir um upptöku/streymi?

- Er málstofustjóri meðvitaður um ráðstafanir svo að spurningar úr sal skili sér í upptöku eða streymi?

- Er rétti búnaðurinn (hljóðnemar, myndavélar) rétt notaður?

- Hef ég gert ráð fyrir þátttöku fjartengdra (t.d. spurningar í gegn um netið)

Kynningarefni 

- Er ég komin í samband við Markaðs- og kynningarmál í tengslum við kynningarefni?

- Hef ég rætt upphafsmynd/garfík á skjám fyrir og á milli erinda við Markaðs- og kynningarmál?

- Er þörf á skjám frá KHA?

Skráningar og auglýsingar 

- Þarf skráningu á viðburðinn?

- Er búið að setja upp skráningarkerfi með aðstoð Markaðs- og kynningarmála eða RHA?

- Er búið að auglýsa viðburðinn tímanlega með aðstoð Markaðs- og kynningarmála?

Veitingar og húsnæði 

- Er búið að bóka rými hjá Rekstri fasteigna?

- Er búið að panta veitingar hjá Rekstri fasteigna / Kaffi Borg?

- Ef ráðstefnan er utan opnunartíma – er búið að ræða það sérstaklega við Rekstur fasteigna?

Tækniaðstoð 

- Er búið að bóka tækniaðstoð á [http://hjalp.unak.is](http://hjalp.unak.is)

- Ef ráðstefnan er utan opnunartíma?

Ráðstefnu og málstofustjórar 

- Hefur verið valinn ábyrgðaraðili á hverjum stað?

- Hefur málstofustjóri skýr fyrirmæli um kynningu erinda og hlutverk sitt?

- Er búið að skila öllum glærum til KHA í gegn um [http://hjalp.unak.is](http://hjalp.unak.is)