---
title: "Tækniaðstoð"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4193550347/T%C3%A6knia%C3%B0sto%C3%B0"
format: markdown
---
Kennslumiðstöð býður upp á tækniaðstoð á opnunartíma sem er 8-16 virka daga. Ef óskað er eftir viðveru tæknifólks eða stuttu viðbragði þá má setja tímalega inn beiðni á hjálparsíðu Háskólans, [hjalp.unak.is](http://hjalp.unak.is/), en að öðru leiti er hægt að hringja í þjónustuborð í síma 460-8070 og óska eftir aðstoð ef þess gerist þörf.

Kennslumiðstöð getur útbúið hlekki fyrir streymi og stofnað svokallaða Webinar fundi þar sem almenningur hefur ekki möguleikann á að kveikja á hljóðnema eða myndavél hvenær sem er. Þetta form er mjög hentugt þar sem það kemur í veg fyrir allar truflanir sem geta orðið af þeim sem ekki eru á staðnum.

Ef ráðstefnan er utan almenns opnunartíma þá þarf að ræða það sérstaklega við Kennslumiðstöð þar sem kostnaður verður af yfirvinnu og manna þarf sérstaklega þann tíma.