---
title: "Upptaka hleðst ekki upp"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4137943047/Upptaka%20hle%C3%B0st%20ekki%20upp"
format: markdown
---
Langar upptökur taka tíma að hlaðast upp, og þurfa að vinnast á netþjóni áður en þær verða aðgengilegar. Ef hins vegar upptaka hleðst ekki upp af einhverjum ástæðum, þá er hægt að endurræsa upphleðsluferlið. 

Athugið að ef það eru fleiri en ein upptaka sem ekki hefur hlaðist upp, þá er mælt með því að endurræsa upphleðsluna á einni upptöku í einu


- Byrjiið á því að opna og skrá ykkur inn í Panopto upptökuforritið
- Veljið “Manage Recordings”
- Gangið úr skugga um að upptakan sé ekki að hlaðast upp í “Upload Pregress”
- Í “Currently Uploading Recordings”, takið vel eftir því í hvaða möppu upptakan á að fara
- Smellið á “Cancel” → “Cancel Upload”


Upptakan fer nú í “Offline Recordings”

- Finnið upptökuna í “Offline Recordings” og smellið á “Upload to Server”
- Finnið og veljið rétta möppu í stað “Offline Recording”
- Smellið á “Upload”

Nú ætti upptakan að hlaðast eðlilega upp og færast yfir í “Uploaded Recordings”

![Panopto - Upload.gif](media://1cd41ea9-f7e9-4360-89d8-20097f19d4f8)