---
title: "Aðgangskort - BlueDiamond appið"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4132503592/A%C3%B0gangskort%20-%20BlueDiamond%20appi%C3%B0"
format: markdown
---
**BlueDiamond **appið veitir þér **rafrænan aðgang** að [húsnæði](https://www.unak.is/is/nemandinn/husnaedi-og-adstada/lesrymi) og [líkamsræktarsal](https://www.unak.is/is/nemandinn/husnaedi-og-adstada/likamsraekt) Háskólans á Akureyri.

---

### Hvernig sæki ég um BlueDiamond?

Þú sendir tölvupóst frá** HA-netfanginu** þínu á **[kort@unak.is](mailto:kort@unak.is)**. Í póstinum þarf að koma fram:

- Fullt nafn
- Kennitala

Þegar aðgangurinn þinn er tilbúinn færðu tvo tölvupósta:

1. Annar þeirra er með leiðbeiningum um hvernig á að sækja og virkja appið
2. Hinn er með kóða til að virkja appið

Rafræni aðgangurinn kostar **2.000 kr**. Hann er virkur þar til að námi þínu við HA lýkur en **ef appið er ekki notað í 120 daga verður hann óvirkur**. Ef það gerist þarf að senda tölvupóst á [kort@unak.is](mailto:kort@unak.is) og óska eftir því að láta virkja aðganginn aftur.

---

Háskólinn á Akureyri er opinn frá **kl. 7:45-22:00 virka daga** og frá **kl. 9:00-17:00 um helgar**. Til miðnættis er hægt að komast inn í húsnæðið með BlueDiamond appinu við **bókasafnið **og **hliðar inngang (A) **við Miðborg.

![image-20250825-180748.png](media://1dd6ea79-1ae8-4741-aa3e-419051a0060e)