---
title: "Clipchamp – Taka upp fyrirlestur og hlaða upp í Canvas"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4125982721/Clipchamp%20%E2%80%93%20Taka%20upp%20fyrirlestur%20og%20hla%C3%B0a%20upp%20%C3%AD%20Canvas"
format: markdown
---
Þessar leiðbeiningar sýna hvernig þú tekur upp fyrirlestur með **Clipchamp** og hleður upp í **Canvas**.

## 📘 Leiðbeiningar

<details>
<summary>Opna Clipchamp í Windows 11 </summary>

1. Leitaðu að **Clipchamp** í *Start-valmyndinni* og smelltu á **Open** til að ræsa forritið.
  

> 📝 Hægrismelltu á **Microsoft Clipchamp** í *Start-valmyndinni* og veldu **Pin to taskbar** til að festa forritið á verkstikuna.
> 📝 
> 📝 ![image-20250821-083226.png](media://ade5ab3e-f659-483c-b2fc-30fd972d6ae8)
</details>

<details>
<summary>Opna Clipchamp í gegnum Teams</summary>

1. Smelltu á **punktana þrjá** í vinstri stikunni. Skrifaðu **Clipchamp** í leitargluggan og smelltu á forritið til að opna það.
  

> 📝 Hægt er að **festa forritið **á stikun í **Teams **með því að hægrismella á það og velja **Pin**.
> 📝 
> 📝 ![image-20250820-154919.png](media://c010e8d3-6b36-4017-98c1-8cd885101b04)


2. Smelltu á **Video project** undir *Create new* til að opna nýtt verkefni.
</details>

<details>
<summary>Taka upp fyrirlestur í Clipchamp</summary>

1. Smelltu á **Blank Video** undir *Create new* til að búa til nýja upptöku.
  
2. Veldu **Record & create** í vinstri valmynd.
  
3. Veldu upptökuaðferð:
  - **Screen and camera** – tekur upp bæði skjáinn og myndband af þér.
  - **Webcam** – tekur aðeins upp úr vefmyndavél.
  - **Screen** – tekur aðeins upp skjáinn.
  - **Audio** – tekur aðeins upp hljóð.
    
4. Veldu réttan **hljóðnema **og **myndavél **(ef við á), þú getur staðset myndina af þér þar sem hún verður ekki fyrir glærunum. Smeltu svo á **Start screen recording** til að hefja upptöku.
  
5. Veldu **Entire Screen** og smelltu á þann skjá sem þú vilt taka upp. Smelltu síðan á **Share** til að hefja upptöku.
  
6. Smelltu á **Stop and review** þegar upptöku er lokið.
  
7. Ef þarf geturðu klippt byrjun eða endi upptökunnar í **tímalínunni** neðst. Smelltu síðan á **Export** til að vista upptöku.
  
8. Veldu a.m.k. **1080p (High quality)**, gefðu skránni nafn og veldu hvar hún á að vistast. Smelltu síðan á **Export** til að vista upptökuna.
  
9. Þegar upptakan hefur verið vistuð birtist staðfesting. Hér geturðu valið að **opna skrána**, **deila henni** eða **vista hana á tölvuna þína**.
</details>

<details>
<summary>Hlaða upptöku inn inn á Canvas</summary>

1. Skráðu þig inn í **Canvas** gegnum [canvas.unak.is](http://canvas.unak.is).
  
2. Veldu námskeið sem á að innihalda upptökuna.
3. Smelltu á **Panopto** í vinstri valmynd áfangans og síðan á **Create **takkann.
  
4. Smelltu **Upload media**.
  
5. **Dragðu **myndbandið inn reitinn eða smelltu á **Choose files** og veldu skrá til að hlaða upp.
  
6. Bíddu þar til vinnsla er lokið. Upptakan birtist þá sjálfkrafa undir **Panopto **hlutanum í **Canvas**.
</details>

  


## \uD83D\uDCCB Tengdar síður

> Macro (contentbylabel)