---
title: "Inspera - Flytja einkunnir í Canvas"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4038361229/Inspera%20-%20Flytja%20einkunnir%20%C3%AD%20Canvas"
format: markdown
---
Þessi leiðbeining sýnir hvernig þú flytur einkunnir úr **Inspera** yfir í **Canvas** til að tryggja að nemendur sjá réttar einkunnir í Canvas.  


## 📘 Leiðbeiningar



1. Farðu inn á Inspera [https://unak.inspera.com/admin](https://unak.inspera.com/admin#home)
  
2. Smelltu á "**Grade**"
  
3. Smelltu á prófið sem þú ætlar að færa einkunnir í. Nauðsynlegt er að staðfesta einkunnir hafi það ekki verið gert þegar yfirferð var lokið
  
4. Smelltu á **Confirm Final Grading** til að staðfesta einkunnir og færa þær yfir á prófasvæðið í Uglu (milliliður milli Inspera og Canvas).
  
5. Smelltu á **Confirm now** í sprettiglugganum
  
6. Nú er einkunnagjöf lokið og þú getur smellt á **Show real names** til að sjá nöfn nemenda.

> 📝 Hafi einhver mistök átt sér stað getur þú smellt á **Reopen **til að uppfæra einkunnir - eftir það þarf að endurtaka skrefið með **Confirm Final Grading**.


7. Skráðu þig inn á **Uglu** í nýjum flipa: [https://ugla.unak.is/](https://ugla.unak.is/)
  
8. Smelltu á **Uglan mín**.
  
9. Smelltu svo á **Kennslan mín**.
  
10. Smelltu á táknið fyrir rafræn próf.
  
11. Smelltu á **blýantstáknið** fyrir framan nafn prófs.
  
12. Ef þetta lítur svona út þá eru einkunnirnar ekki komnar frá Inspera - getur tekið allt að 15 mínútur í fjölmennu prófi - prufaðu aftur seinna
  
13. Svona lítur þetta út þegar einkunnir hafa borist frá Inspera. Smelltu á **Færa einkunnir inní Canvas**.
  
14. Smelltu á **Færa yfir í Canvas** - þessi aðgerð getur tekið nokkrar mínútur
  
15. Smelltu á **Loka**.
  
16. Smelltu á **Einkunnabók** til að fara inn í Canvas.
  
17. Einkunnir þarf að birta til að nemendur sjái þær (ef auga með striki yfir sést þá er ekki enn búið að birta einkunnir) Smelltu á punktana 3 fyrir aftan nafn prófsins og veldu **Birta einkunnir.**
  

## \uD83D\uDCCB Tengdar síður

  


> Macro (contentbylabel)