---
title: "Inspera – Fara yfir próf"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4029218821/Inspera%20%E2%80%93%20Fara%20yfir%20pr%C3%B3f"
format: markdown
---
Þessar leiðbeiningar sýna hvernig þú ferð yfir próf í Inspera.

**Flýtileiðir í hlutar:**

> Macro (toc)

### Fara yfir próf

1. Opnaðu **Inspera** með því að fara á [unak.inspera.com/admin](https://unak.inspera.com/admin).
2. Smelltu á **Grade** í bláa borðanum efst á síðunni.
  
3. Smelltu á nafn prófsins sem þú ætlar að fara yfir.
  
4. Smelltu á **Open Final Grading**.
  
5. Þú getur smellt á númer nemenda hér og séð hvernig viðkomandi hefur svarað. Þú sérð ekki nöfn nemenda fyrr en einkunnagjöf er lokið!
  
6. Þú sérð allar spurningar prófsins. Smelltu á þá spurningu sem þú ætlar að fara yfir.
  - Óyfirfarin svör eru merkt með **bláum **hring.
  - Yfirfarin svör eru merkt með **grænum **hring.
  - Sjálfvirkt metnar spurningar eru merktar með **eldingu**.
    
7. Efst er spurningin og þar fyrir neðan svar viðkomandi nemanda - smelltu á tölu til hægri til að gefa einkunn (hér eru 6 stig í boði en það er misjafnt eftir spurningum) - þú þarft ekki að vista eftir að þú smellir á tölu.
  
8. Ef þú vilt nota tugabrot smellir þú á **Use decimal.**
  
9. Skrifaðu einkunnina í reitinn (allt að 2 aukastafir og punktur í stað kommu) og smelltu á **Update**
  
10. Ef það þarf að breyta einkunn fyrir krossaspurningu smellir þú á **Override.**  
***ATH ****ef rangt svar er merkt í prófi í krossaspurningu er hægt að laga það hjá öllum í einu!*
  
11. Til að sjá sömu spurningu hjá næsta nemanda smellir þú á **örina **sem bendir til hægri niðri í vinstra horninu.
  
12. Til að skipta milli spurninga smellir þú á **númer spurningar** í borðanum fyrir neðan spurningu.
  
13. Þegar þú hefur farið yfir öll svör við viðkomandi spurningu þá hverfur örin til hægri, skiptu um spurningu og flettu til vinstri.
  

### Athugasemdir til nemenda

14. Ef þú vilt gera athugasemd við svar sem nemandi sér í prófsýningu í Inspera smellir þú á **Comments** fyrir ofan spurningu/svar.
  
15. Í ljósbláa borðanum stendur að athugasemd sé falin(privat) því ekki er búið að stilla prófsýningu á prófinu - það er hægt að gera eftir yfirferð.
  
16. Smelltu á þetta tákn til að opna reit fyrir athugasemd.
  
17. Mundu að **vista **athugasemdina.

### Yfirferð lokið - síðustu skrefin!

18. Þegar farið hefur verið yfir allar spurningar, smellir þú á nafn prófs í bláa borðanum.
  
19. Að lokum, þá smellir þú á **Confirm final grading**.
  

## \uD83D\uDCCB Tengdar síður

> Macro (contentbylabel)