---
title: "Signet"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/4022730757/Signet"
format: markdown
---
**Signet** er rafræn undirritunarlausn frá Advania sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að undirrita skjöl á öruggan, einfaldan og löglega bindandi hátt, hvar og hvenær sem er.

- 📄 **Rafræn undirritun**: Skjöl eru undirrituð með rafrænum skilríkjum og undirritunin er jafngild hefðbundinni undirritun með penna.
- 🌍 **Alþjóðleg notkun**: Hægt er að undirrita skjöl í yfir 50 löndum, m.a. með Evrotrust skilríkjum.
- 🔐 **Öryggi og lögmæti**: Lausnin uppfyllir kröfur eIDAS reglugerðar Evrópusambandsins og GDPR. Hún er einnig ISO 27001:2013 vottuð.

> ❌ Vinsamlegast athugið að öllum skjölum er eytt sjálfkrafa að 3 mánuðum liðnum og ekki er unnt að endurheimta þau að þeim tíma liðnum. Notandi ber sjálfur ábyrgð á að sækja afrit af undirrituðum skjölum áður en þeim er eytt.


## \uD83D\uDCD8 Leiðbeiningar

<details>
<summary>Innskráning</summary>

1. Opnið <u>[team.signet.is](http://team.signet.is/)</u> og smellið á **Innskráning**` `
  
2. Smellið á **punktana þrjá.**
  
3. Veljið **OAuth** og smellið á **Innskrá**.
  
4. Veljið viðeigandi aðgang og smellið á **Áfram**.

> ℹ️ **Starfsmannaaðgangurinn minn:** Skjöl sem eingungis starfsmaður hefur aðgang að.  
> ℹ️ **Umsjónaraðgangur:** Fyrir stjórnendur.  
> ℹ️ **Teymissvæði:** Fyrir starfseiningar innan HA.
</details>

<details>
<summary>Hvernig sendi ég skjal í undirritun í Signet?</summary>

Til þess að senda skjal i undirritun skráir þú þig inn á [s](https://signet.is/)[http://team.signet.is](http://team.signet.is/)  þar sem þú getur hlaðið inn PDF skjali og skráð undirritendur.

**Skilaboð: **Hægt er að skrifa skilaboð með tilkynningunni sem fer á netfang undirritenda og SMS tilkynningu sé hún valin.

**Texti með undirritun:** Hægt er að taka fram hvaða hlutverki undirritandi gegnir, t.d. hvort hann undirritar fyrir hönd HA eða annarrar stofnunar.

![image-20250610-111608.png](media://47a56b7c-9132-4e4d-9cd6-5880c6d15b38)
</details>

<details>
<summary>Styður Signet undirritanir frá erlendum aðilum?</summary>

Já, hægt er að senda skjöl í undirritun á einstaklinga sem eiga rafræn skilríki frá [Evrotrust](https://evrotrust.com/). Lista yfir lönd sem Evrotrust styður við útgáfu rafrænna skilríkja má finna [hér](https://www.evrotrust.com/doc/eIDAS/Countries_en.html).

Áður en hægt er að senda skjal í undirritun á erlendan einstakling, þarf erlendi einstaklingurinn að sækja rafræn skilríki frá Evrotrust og skrá sig einu sinni inn á vef Signet. Til að senda skjal í undirritun notar sá sem sendir skjalið í undirritun símanúmer skilríkjahafa, sem notað var við skráninguna á skilríkinu.

Undirritandi getur fengið útgefin rafræn skilríki frá Evrotrust með því að sækja Evrotrust appið á [Apple App Store](https://apps.apple.com/bg/app/evrotrust/id1195807317) eða [Google Play Store](https://play.google.com/store/apps/details?id=com.evrotrust.app&hl=en&gl=US&pli=1) og mynda vegabréfið sitt og andlit með myndavélinni á símanum.

Nánari leiðbeiningar geta undirritendur fundið með því að velja **Nýskráning hjá Evrotrust** á [innskráningarmynd Signet](https://signet.is/authed/login?method=3).

![image-20250610-105102.png](media://f4f03e99-7e97-4911-99ed-21b8e79adb09)

Þegar undirritandinn hefur fengið sér rafræn skilríkin og skráð sig inn í Signet er hægt að senda undirritanda skjal. Skjalið er sent með því að velja **Evr** og stimpla inn **símanúmer**. Athugið að símanúmerið þarf að vera með landsnúmeri (til dæmis +354 fyrir Ísland).

![image-20250610-105203.png](media://58740f31-1b38-49ae-a8e1-e878ffd38927)
</details>

<details>
<summary>Get ég undirritað í Signet án þess að hafa íslensk rafræn skilríki?</summary>

Ef þú átt ekki rafræn skilríki frá Auðkenni og kemst ekki á afgreiðslustað Auðkennis til þess að fá ný rafræn skilríki þá getur þú sótt rafræn skilríki frá **Evrotrust**.

Til að frá útgefin rafræn skilríki frá Evrotrust þarftu að sækja Evrotrust appið á [Apple App Store](https://apps.apple.com/bg/app/evrotrust/id1195807317) eða [Google Play Store](https://play.google.com/store/apps/details?id=com.evrotrust.app&hl=en&gl=US&pli=1) og mynda vegabréfið þitt og andlit með myndavélinni á símanum.

Nánari leiðbeiningar getur þú fundið með því að velja **Nýskráning hjá Evrotrust** á [innskráningarmynd Signet](https://signet.is/authed/login?method=3).

![image-20250610-130404.png](media://db49d4db-0271-4e9f-8d82-2830b6a58201)

Þegar þú hefur fengið útgefin rafræn skilríki í appinu frá Evrotrust **þarftu að skrá þig inn á Signet** með því að setja inn símanúmerið sem þú notaðir fyrir Evrotrust skráningarferlið í [Signet innskráningunni.](https://signet.is/authed/login?method=3)

Þegar þú skráir þig inn á Signet færðu skilaboð um að mælt sé með því að bæta við rafrænum skilríkjum **með kennitölu**.

Þegar þú hefur fengið nýtt skilríki með kennitölu getur þú **skráð þig inn í Signet með skilríkinu sem inniheldur kennitöluna þína** og nálgast skjöl sem þér hafa verið send í undirritun.

![image-20250610-130445.png](media://b30b4e61-cdb8-4396-9c60-2f917c25c44b)

1. Veldu **Sign for free**
2. Veldu rafræna skilríkið með kennitölu (personal ID number included)
3. Settu inn PIN númerið þitt til að staðfesta

Þegar þú hefur skráð þig inn á Signet getur þú skoðað skjölin þín undir **Yfirlit skjala**. Smelltu á undirrita aðgerðina til að skoða og undirrita skjalið.

![image-20250610-130603.png](media://7e636eb4-75d1-47ef-b9ed-f8cfa0938f04)

Til að undirrita skjalið, smelltu á **Undirrita** hnappinn.

![image-20250610-130659.png](media://37760b72-17ff-4718-9028-fe9152b436e0)

 

1. Veldu **Sign for free**
2. Settu inn PIN númerið þitt til að staðfesta

Skjalið hefur verið undirritað. Mælt er með að þú vistir skjalið í tölvunni/símanum þínum þar sem **skjölum er eytt úr Signet eftir 90 daga**.
</details>

<details>
<summary>Er hægt að fella niður undirritanda í miðju undirritunarferli?</summary>

Nei, ekki er hægt að breyta skjalinu eftir að undirritunarferlið er hafið.
</details>

<details>
<summary>Hvernig er tryggt að enginn annar en valinn undirritandi geti undirritað skjalið?</summary>

Undirritun er tengd ákveðnum einstakling út frá rafrænum skilríkjum.

Þannig getur eingöngu handhafi skilríkisins undirritað.
</details>

<details>
<summary>Eru takmörk fyrir hversu margir mega undirrita tiltekið skjal?</summary>

Nei, það er engin takmörk á því hve margir undirritendur eru á hverju skjali.
</details>

<details>
<summary>Styður Signet alla vafra?</summary>

Signet styður alla helstu vafra sbr. Chrome, Safari, Internet Explorer, Firefox og Opera hvort heldur um er að ræða tölvur eða snjalltæki.
</details>

<details>
<summary>Hvernig bæti ég við skoðunaraðila</summary>

Skoðunaraðilar hafa lesaðgang að skjalinu í Signet, geta hlaðið því niður og fylgst með stöðu þess, þ.e. hvaða undirritendur hafa undirritað skjalið.

Skoðunaraðila er bætt við með því að opna **Stillingar** og haka við **Leyfa skoðunaraðila**. Þá birtist takkinn til þess að bæta við skoðunaraðila.

![image-20250610-132503.png](media://520db389-1ee9-486a-b1c6-74e669f117e9)
</details>

 

🇬🇧 **Evrotrust**

<details>
<summary>How do I register and sign documents with digital certificates from Evrotrust?</summary>

You can get digital certificates from Evrotrust by getting the Evrotrust app on [Apple App Store](https://apps.apple.com/bg/app/evrotrust/id1195807317) or [Google Play Store](https://play.google.com/store/apps/details?id=com.evrotrust.app&hl=en&gl=US&pli=1) and take a photo of your passport and face with the phone’s camera.

More instructions can be found by choosing **Register with Evrotrust** on [Signet's login page](https://signet.is/en/authed/login?method=3).

![image](media://d938b195-6725-4a99-94d7-da8f5b5de0ec)

When you have your digital certificates in the app from Evrotrust, you **need to login to Signet** entering the phone number you used for the Evrotrust registration on the [Signet's login page](https://signet.is/en/authed/login?method=3).

![image-20250610-124304.png](media://74b5e010-d793-46fa-96e7-a458ce636569)

1. Choose **Sign for free**
2. Select your certificate
3. Type in your PIN to confirm

Complete the registration in Signet by accepting the terms & conditions and privacy policy and click **Register**.

![image-20250610-124424.png](media://701b7711-f89a-4694-80fa-2ee43a4c13cd)

 

When you’ve completed the registration with Evrotrust and to Signet, documents can be sent to you for digital signature by using your **phone number** or **ID number**.

When you've received a signature request for a document, you can view and sign the document with your Evrotrust certificates.
</details>

<details>
<summary>How do I sign a document in Signet with Evrotrust certificate?</summary>

When you get document to be signed in Signet, you will get an email with a direct link to the document. To open and view the document click “**View and sign**” button in the email notification and authenticate to Signet with your phone number

![image-20250610-124804.png](media://72d7dcbc-34ee-4842-bf0b-ea3215ae3ea5)

1. Choose **Sign for free** (note that you‘re not signing the document in this step but authenticating to view the document)
2. Select your certificate
3. Type in your PIN to confirm

When you've logged in, you can view and sign the document.

![image-20250610-124829.png](media://fca10416-f1dc-463d-8816-0d5afdf37944)

 

Click the "**Sign**" button to sign the document.

![image-20250610-124924.png](media://f99d2a4a-7266-47cd-b900-94cc0fd82f51)

   
Choose **Sign for free **and type in your PIN to confirm:

![image-20250610-125103.png](media://20ede829-d682-415d-b6b0-1e0d721859f6)

The document has been signed successfully. It’s recommended to **download the document** and save it on your computer/phone because** it will be deleted from Signet in 90 days**.
</details>

<details>
<summary>Where do I find my Evrotrust Personal ID Number?</summary>

Your Evrotrust ID / Personal ID Number can be used to send documents to you in Signet. You can either find this information in **Signet** or in the **Evrotrust app**.

**Signet**

1. Go to [Signet's login page](https://signet.is/en/authed/login?method=3).
2. Login with your Evrotrust certificates
3. Choose the menu in the upper right corner
4. Choose **Your registration**
  

**Evrotrust app**

1. Open the Evrotrust app in your phone.
2. Choose **Certificates**
3. Select the Certificate that you will use to sign documents in Signet


The number below **Personal ID Number** is your Evrotrust ID.

![image-20250610-130113.png](media://abbe703f-910a-4317-8677-dd485921e5f0)
</details>


## \uD83D\uDCCB Tengdar greinar

> Macro (contentbylabel)