---
title: "Outlook - My Template viðbótin"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3618340867/Outlook%20-%20My%20Template%20vi%C3%B0b%C3%B3tin"
format: markdown
---
My Template viðbótin í Outlook er verkfæri sem gerir notendum kleift að búa til, vista og endurnýta tölvupóstsniðmát (e. email templates). Þetta kemur sér sérstaklega vel ef þú þarft að senda út endurtekin skilaboð með sömu eða svipuðu efni, þar sem þú getur fljótt valið og notað tilbúið sniðmát í stað þess að slá það inn í hvert skipti.

[Skoða Scribe leiðbeiningar](https://scribehow.com/shared/Outlook__My_Template_vidbotin__UQDjkWfvT66z7FgxJbJKag)

## \uD83D\uDCD8 Leiðbeiningar

1. Skráðu þig inn á **[http://outlook.com](http://outlook.com)**  með Microsoft reikningnum þínum.
2. Smelltu á **New mail** til að opna nýjan póstglugga.
  
3. Smelltu á **Enhance Outlook with apps** takkann.
  
4. Skrifaðu **My Templates** í leitargluggann.
  
5. Festu **My Templates** á verkslánna með því að **hægri smella** á það og velja **Pin**.
  
6. Til að opna **My Templates** smellirðu á merkið.
  
7. Smellt á **+ Template** til að búa til nýtt sniðmát.
  
8. Smelltu á **Save **þegar þú hefur fyllt út sniðmátið.
  
9. Með því að smella á sniðmátið birtist textinn í póstglugganum.
  
  
10. Til að **breyta** sniðmáti smellirðu á **Edit** takkann.
  
11. Smelltu á **Save** þegar breytingum er lokið.