---
title: "Ég skráði mig inn á sameiginlega tölvu og get ekki skráð mig út. Hvað get ég gert?"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3166240770/%C3%89g%20skr%C3%A1%C3%B0i%20mig%20inn%20%C3%A1%20sameiginlega%20t%C3%B6lvu%20og%20get%20ekki%20skr%C3%A1%C3%B0%20mig%20%C3%BAt.%20Hva%C3%B0%20get%20%C3%A9g%20gert%3F"
format: markdown
---
Það er mikilvægt að notendur skrái sig aldrei inn í hugbúnað eins og til dæmis Teams, OneDrive, Outlook, Word og Powerpoint sem dæmi nema á sínum eigin aðgangi á tölvunni þar sem stýrikerfi tölvunnar getur vistað aðganginn. Það þýðir að hver sem skráir sig inn á þeim aðgangi sem var innskráður getur farið inn á Teams svæði, tölvupóst, gögn og annað sem tilheyrir notandanum sem skráði sig inn. Þess vegna bendum við notendum á að opna huliðsglugga í vafrara og fara þannig inn á [ugla.unak.is](http://ugla.unak.is) til þess að komast inn á þeirra svæði. 

Ef notandi hefur hins vegar skráð sig inn fyrir slysni, þá skal fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Smella á leitargluggann í windows stýrikerfinu og skrifa “Work or school”. Valmöguleikinn “Work or school users” ætti að birtast í listanum. Smellið á hann
2. Finnið notendanafnið ykkar í listanum, smellið á örina niður og veljið “Remove”
  Nú hafið þið eytt aðgangsupplýsingunum ykkar úr stýrikerfinu. Ef þið hafið hlaðið niður skrám eða skráð ykkur inn á OneDrive, þá þurfið þið að finna þær skrár og eyða þeim handvirkt. Einnig mælum við með því að hreinsa skyndiminni vafrara með því að fylgja þessum leiðbeiningum

> Macro (include)