---
title: "Þráðlaus mynd- og hljóðsending (AirServer)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3164110849/%C3%9Er%C3%A1%C3%B0laus%20mynd-%20og%20hlj%C3%B3%C3%B0sending%20(AirServer)"
format: markdown
---
AirServer er hugbúnaður sem getur tekið á móti þráðlausri mynd- og hljóðsendingu frá öðrum tækjum búnum þráðlausu netkorti eins og fartölvum, símum og spjaldtölvum. Þessi hugbúnaður er oftast hafður á sér tölvu eins og er í sumum fundarherbergjunum. Þar af leiðandi þarf að stilla viðkomandi skjá (oftast hægra megin) á þann inngang HDMI 2.

**Athugið:** Ekki er hægt að tengjast fleiri en einum skjá þráðlaust, en hins vegar geta fleiri en einn sent þráðlaust á einn skjá samtímis. AirServer er oftast tengdur þeim skjá sem er á hægri hönd þegar horft er á skjáina


**Fyrst þarf að stilla skjáinn á réttan inngang, HDMI 2. Athugið að fjarstýringin breytir báðum skjáum. Skjárinn vinstra megin á að fara sjálfkrafa á réttan inngang eftir nokkrar sekúndur.**


Hér eftir eru svo leiðbeiningar eftir mismunandi stýrikerfum hvernig tengjast á þráðlausri myndsendingu:

<details>
<summary>Windows 10</summary>

- Haldið inni Windows takkanum á lyklaborðinu og ýtið einu sinni á takkann “p”

  Veljið “Connect to wireless display”
  
- Viðkomandi AirServer tæki ætti að koma upp í listanum. Smellið á hann og sláið inn kóðann sem birtist á skjánum sem er verið að tengjast
</details>

<details>
<summary>Windows 11</summary>

- Haldið inni Windows takkanum á lyklaborðinu og ýtið einu sinni á takkann “k”
  
- Smellið á viðkomandi myndmóttakara sem þið viljið tengjast
  
- Sláið inn kóðann sem birtist á skjánum sem þið viljið tengjast
</details>