---
title: "Algeng Vandamál"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3085336577/Algeng%20Vandam%C3%A1l"
format: markdown
---
- **Spurningarnar sjást ekki, bara hvítur skjár:**
  - Þetta getur gerst ef tölvan missir samband við net í stutta stund. Til þess að laga þetta, þá er oftast nóg að fara á öftustu síðuna í prófinu (skilasíðan) og velja þar eina spurningu úr listanum. Það lætur vafrarann endurhlaða prófinu.
- **Lyklaborðið mitt fór yfir á annað tungumál:**
  - Til að skipta um tungumál á lyklaborði, þá er ýtt á
    - PC: [ctrl]+[shift]
    - MAC: [control]+[space]
- **Ég læsti tölvunni (Windows) og nú er rauður skjár sem er ekki hægt að skrifa eða haka í neitt á**
  - ýttu á [ctrl] + [alt] + [delete]. Þá ætti að koma skjár til þess að skrá þig inn á tölvuna. Eftir það, þá ættir þú að geta skrifað inn lykilorðið sem prófverðir hafa til þess að komast aftur inn í prófið
- **Villa við að fara inn í prófið: “The application listed below could not be terminated! Please terminate them manually and try again”**
  - PC: Þetta gerist ef Inspera getur ekki lokað þeim forritum sem ekki eru leyfð í bakgrunnskeyrslu. Þá þarf að finna viðkomandi forrit sem kemur fram í skilaboðunum annað hvort niðri í horninu hægra megin hjá klukkunni og loka því, eða með því að hægri-smella á “Taskbar”, velja “Task manager”, finna viðkomandi forrit í “Background processes”, hægri-smella á það og velja “End task”