---
title: "\"Presenter View\" - Ekki sama á skjá og skjávarpa (eða öðrum skjá)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3036184998/%22Presenter%20View%22%20-%20Ekki%20sama%20%C3%A1%20skj%C3%A1%20og%20skj%C3%A1varpa%20(e%C3%B0a%20%C3%B6%C3%B0rum%20skj%C3%A1)"
format: markdown
---
# Stillingar Windows stýrikerfinu:

Athugið að þessi stilling hefur áhrif á skjáupptöku á Panopto. Ef taka á upp í panopto, vinsamlegast skoðið vel þær stillingar hér að neðan.

Í öllum stofum er hægt að nota skjávarpa og tölvuskjá á kennaraborði á aðskildan hátt, á sama hátt og tvo tölvuskjái sem eru tengdir við sömu tölvuna. Hins vegar þarf að hafa í huga að forrit sem eru ekki sérstaklega gerð fyrir þessa virkni verða örlítið snúin í notkun þar sem draga þarf það sem á að sýna á skjávarpanum frá skjánum á kennaraborðinu og yfir á skjávarpann. Þar sem skjávarpi er í sumum tilfellum á bak við kennaraborð, þá liggur ekki alltaf ljóst fyrir hvar á skjánum á kennaraborðinu þarf að fara út af til að komast á hinn skjáinn. 

Til þess að virkja tvo aðskilda skjái:

- Smellið á skilaboðin neðst í hægra horninu á skjáborðinu og smellið á “Project”

![image](media://8a589370-1435-4bfc-ba25-d00853d96019)

eða:

Haldið inni “Start” takkanum á lyklaborðinu og ýtið einu sinni á “P” takkann

![image](media://b6333ca9-f91f-4d49-a0bc-7983b56580d1)

- Í valmyndinni sem birtist, veljið “Extend”


Nú ætti ekki að vera það sama á skjánum á kennaraborðinu og á skjávarpanum. Ef það er ekki ljóst í hvaða átt á að færa glugga eða mús til að komast yfir á hinn skjáinn:

- Hægri smellið á skjáborðið og smellið á “Display settings”

Myndin sem kemur sýnir afstöðu skjánna. Hægt er að smella á “Identify” til að sýna með númeri hvor skjárinn er 1 og hvor er númer 2.

![image](media://99830cde-532d-4945-b5a4-bb29d7a2cdde)


# **Stillingar á ****[Panopto](https://unak.atlassian.net/wiki/spaces/LEIB/pages/1181980550)**** upptökukerfinu:**

Þegar búið er að virkja tvo aðskilda skjá á tölvunni, þá breytist viðmótið í [Panopto](https://unak.atlassian.net/wiki/spaces/LEIB/pages/1181980550/Panopto+uppt+kukerfi) þannig að tveir valmöguleikar eru nú undir “Secondary sources”

![image](media://f6300124-8c6a-4a07-ac85-df028c3cfe1f)

Til þess að sjá hvor skjárinn fer á upptöku, þá er hægt að haka í “Enable screen capture preview”. Þá birtist mynd af skjámyndinni sem er valin í glugganum í Panopto. Ef rangur skjár er valinn, það er** ekki **skjávarpinn, þá þarf að víxla valmöguleikunum “Capture Main Screen” / “Capture Second Screen”


# Stillingar á Powerpoint:

Til þess að virkja “Presenter view” í Powerpoint:

- Smellið á “Slide Show” valmyndina
- Hakið í “Use Presenter View”

Ef glærunar og stjórnborðið eru víxluð á skjánum, það er ef glærurnar eru á tölvuskjánum á kennaraborðinu og stjórnborðið á skjávarpanum:

- Smellið á “Display settings” → “Swap Presenter View and Slide Show”

eða

- Veljið skjá í “Monitor” í “Slide Show” valmyndinni


![image](media://9d305eeb-eaf4-49cc-8367-18c10b9cb04e)