---
title: "Røde Podcaster borðhljóðnemi"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3034841089/R%C3%B8de%20Podcaster%20bor%C3%B0hlj%C3%B3%C3%B0nemi"
format: markdown
---
![image](media://83e78d6c-d85b-4bc9-8ab5-4b39cd521578)

Røde borðhljóðnemar eru til tímabundinna útlána fyrir upptökur inn á skrifstofum. Þeir henta vel fyrir upptökur á fyrirlestrum og skila góðu, skýru tali. Athugið þó að ef það bergmálar í herberginu sem tekið er upp í, þá mun það heyrast á upptökunni. Þessir hljóðnemar eru einfaldir í notkun og eru settir í samband með USB snúru. Til að nota þá til upptöku, þarf að velja þá eins og til dæmis er sýnt hér í upptökuforritinu [Panopto](https://unak.atlassian.net/wiki/spaces/LEIB/pages/1181980550/Panopto+uppt+kukerfi) þar sem hljóðneminn er valinn í “Audio” fellilistanum

![image](media://0036a8c3-bb74-47b5-87ac-9b6e137972aa)


Hægt er að tengja heyrnatól við hljóðnemann og er styrkstillirinn til þess að hækka og lækka í heyrnatólunum. Ekki er mælt sérstaklega með því að nota heyrnatól við upptökum, en þau eru hentug til þess að átta sig á því hvernig er best að tala í og stilla upp hljóðnemanum. Best er að vísa hljóðnemanum beint að munni í um það bil 10cm fjarlægð, en það þarf að passa upp á að blástur frá munni og nefi nái ekki í hljóðnemann. Það heyrist greinilega á upptökum og er gott að nota heyrnatól til að átta sig á því. Á hljóðnemanum er gaumljós sem gefur til kynna hljóðstyrkinn:

Grænt → Hljóðnemi virkur

Gult → Hljóðstyrkur er heldur hár (hljóðnemi heldur nálægt munni)

Rautt → Hljóðstyrkur of mikill. Hljóð á upptöku verður bjagað og rifið. Hljóðneminn er staðsettur of

nálægt munni og þarf að færast fjær

![image](media://68753712-4761-4ca4-85bd-ba099e879dba)