---
title: "Catchbox (hljóðnemi)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/3029762049/Catchbox%20(hlj%C3%B3%C3%B0nemi)"
format: markdown
---
![image](media://1e742b1d-f2ad-4fcb-b456-a0abc32d814a)


Catchbox er hljóðnemi sem er innbyggður í mjúkan kubb og er ætlaður til þess að kasta á milli fólks í umræðum, hvort sem er til þess að það heyrist betur í stofunni sem og á upptöku og / eða fjarfundi.


Til þess að kveikja á hljóðnemanum, þá er svarti, hringlótti hljóðneminn dreginn upp úr kubbnum. Þá kemur stjórnboxið með rofanum til þess að kveikja, sem og rafhlöðunum í ljós. Gaumljós sýnir hvort það sé kveikt eða slökkt á hljóðnemanum, eða ef skipta þarf um rafhlöður.

Ljósið logar:

- Ekki: Slökkt er á hljóðnemanum
- Grænt: Kveikt er á hljóðnemanum og rafhlöður í lagi
- Rautt: Skipta þarf um rafhlöur og setja þær sem voru í, í hleðslu

![image](media://3cdcd6aa-5f00-4a15-a70c-1a02ef2da00d)

![image](media://4db5a4cc-15ed-4776-bf44-d423eadf0ede)