---
title: "Skráning í Vinnustund (starfsmenn)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/2512617269/Skr%C3%A1ning%20%C3%AD%20Vinnustund%20(starfsmenn)"
format: markdown
---
**Notkun Vinnustundar:**

Starfsmenn skrá sig inn í vinnustund í gegnum vefgátt „[https://heima.orri.is](https://heima.orri.is/)“ þar sem þarf að skrá sig inn í þessa valmynd: **User Name** er það sama og starfsmannanúmer þ.e. HA- xxxxxx  ef starfsmaður er með aðgang að Orra fyrir þá er innskráningin nákvæmlega eins. Þeir sem ekki eru með aðgang í Orra fyrir þurfa að fara í **Login Assistance** og velja sér lykilorð.  
> Macro (inline-media-image)



  
Þú þarft að smella á „Týnt lykilorð eða aðgangsorð„ og fylgja leiðbeiningum til að fá lykilorð sent í tölvupósti. Þá geturðu prófað að skrá þig inn og opna „Vinnustund“ sem ætti að birtast á skjánum.   
  
Þegar starfsmenn eru komnir með aðgang þá er best að skrá öll frávik frá venjulegum vinnutíma reglulega þannig að það gleymist ekki.

**Það er búið að forskrá fastan vinnutíma hjá öllum starfsmönnum**

  


Þegar starfsmaður er kominn inn í kerfið kemur upp:  
> Macro (inline-media-image)



  


Felliglugginn er opnaður og þá koma upp ýmsir möguleikar. Í flipanum **Ég** sjást ýmsar upplýsingar um starfsmanninn.  
> Macro (inline-media-image)



  


Ef smellt er á **Tímar** í fellilistanum þá birtist mynd af þeim færslum sem eru á þeim starfsmanni sem er innskráður. Þar er hægt að bæta inn skráningu eins og veikindum, orlofi, veikindum barna ofl. Í myndinni hér að neðan sjáið þið > Macro (inline-media-image)

  
> Macro (inline-media-image)



  


Ef smellt er á +Tímar er hægt að bæta við færslu eins og t.d. má sjá hér:  
> Macro (inline-media-image)



  


Skráið inn það sem þarf t.d.  
> Macro (inline-media-image)



  


Smellið á** vista** og þá er færslan komin inn. Gott er að venja sig á að skrá skýringar í það sem verið er að skrá þannig að sá sem fer yfir vinnustundina sjái ástæður skráningar.

  


Ef starfsmaður veit af væntanlegu fríi (orlofi) þá er gott að skrá það í leyfisóskir. Það er gert þannig að valinn er flipinn Leyfisóskir.  
> Macro (inline-media-image)



  


Veljið > Macro (inline-media-image)

 sláið óskina inn í :  
> Macro (inline-media-image)



Yfirmaður samþykkir eða hafnar ósk um leyfi, ef óskin er samþykkt flyst hún yfir í **tíma** og er þá skráð sem orlof án þess að starfsmaður þurfi að fara inn í Vinnustund í orlofi til að skila sínum vinnuskýrslum. Þetta er mikið hagræði fyrir bæði þann sem er í fríi og þá sem koma að yfirferð vinnuskýrslna og launavinnslunnar.

Til að skoða stöðu orlofs er farið inn í flipann **leyfi** og kemur þá upp mynd sem sýnir stöðu leyfis þann dag sem skoðað er.

Hér er aðeins farið yfir helstu atriði en inn í Vinnustund er hægt að smella á > Macro (inline-media-image)

 á stikunni.

![image](media://3ff63ae1-5270-46c2-a864-f0cdb3a4b2e8)

þarna er fullt af leiðbeiningum sem gætu verið gagnlegar.

Svo er velkomið að hringja eða koma og fá upplýsingar í síma 460-8512