---
title: "Skipuleggja fund með FindTime (Outlook viðbót)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1237386086/Skipuleggja%20fund%20me%C3%B0%20FindTime%20(Outlook%20vi%C3%B0b%C3%B3t)"
format: markdown
---
FindTime er viðbót við Outlook sem hjálpar til við að skipuleggja fundi. Hægt er að senda póst með nokkrum valkostum um tímasetningu fundar og þá hefst kosning á hvaða tími hentar best. Um leið og allir hafa kosið tíma, þá verður til sjálfkrafa fundur í Outlook dagatalinu.

> Macro (toc)

# Uppsetning 

## Vefvafri

1. Opnaðu Outlook í vefvafranum.
2. Smelltu næst á **New message** til að búa til nýjan póst.
3. Hægra megin í póstinum, rétt hjá **Send **og **Discard**, smelltu á **(...)** hnappinn og veldu **Get Add-ins**.
4. Þá opnast leitargluggi, smelltu á gluggan og byrjaðu að skrifa FindTime.

## Forritið

1. Opnaðu Outlook forritið, smelltu á Home og síðan **Get Add-ins**.
2. Þá opnast leitargluggi, smelltu á gluggan og byrjaðu að skrifa FindTime.
3. Veldu að bæta FindTime við Outlook með því að smella á **Add**.
4. Núna sérðu að FindTime er komið inn i Outlook.

  


  


# Notkun

## Skipuleggja fund

1. Byrjaðu á því að búa til póst eða svara pósti í Outlook.
2. Listaðu upp þá aðila sem eiga að taka þátt í fundinum með því að bæta þeim inn í **To **og/eða **Cc**.
3. Smelltu á Home í póstinum og veldu **Reply with meeting poll**.
4. Skilgreindu hvað fundurinn á að vera langur og hvaða dagar koma til greina.
5. Hér er hægt að flokka fundina eftir því hvaða tími hentar flestum.
6. Við hvern einstakling sést hvernig hann er skráður í dagatalinu hjá sér.
7. Veldu hvenær yfir daginn þú vilt halda fundinn. Þegar búið er að velja tíma, smelltu á **Next**.
8. FindTime býr sjálfkrafa til fund á Teams, en það er alltaf hakað í **Online Meeting** þegar FindTime er notað.
9. Þegar smellt er á Poll settings þá kemur upp eftirfarandi stillingar.  
**Notify me about poll updates: **Þú færð póst í hvert skipti sem aðili velur sér fundartíma.  
**Schedule when attendees reach consensus: **Bóka fund um leið og allir eru sammála um tíma.  
**Hold selected times on my calendar: **Taka til hliðar tímasetningar sem koma til greina í dagatalinu þar til tími hefur verið ákveðinn  
**Lock poll for attendees: **Hægt er að læsa vali hjá aðilinum þegar þeir hafa kosið tíma.  
**Require attendees to verify their identity: **Notendur þurfa að staðfesta að hverjir þeir eru  
**Email notifications in FindTime language**<span style="color: #1e1e1e">: Velja tungumál á svarinu sem kemur frá FindTime.</span>
10. Smelltu á **Insert to email** til að festa könnunina við tölvupóstinn.
11. Könnunin er núna komin inn í póstinn, það er alltaf hægt að smella á **Edit Options** ef það þarf að breyta einhverju.
12. Ýttu á **Send **til að senda könnunina.
13. Þú færð síðan sendan hlekk sem beinir þig að síðu, þar sem hægt er að fylgjast með kosningunni.