---
title: "Búa til próf (e. Create a quiz)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1237385046/B%C3%BAa%20til%20pr%C3%B3f%20(e.%20Create%20a%20quiz)"
format: markdown
---
> Macro (toc)

- [Tegundir spurninga (e. New Quiz Question Type)](https://unak.atlassian.net/wiki/spaces/LEIB/pages/1237385071)

# Stillingar á prófi

Smelltu á Próf (e. Quizzes).

![image](media://8ed6df94-8cc7-4153-bc6d-f0fd6caf5d8b)

  


Smelltu næst á +Próf (e. +Quiz).

![image](media://73023861-27cc-4c9d-b8aa-d3dc8e1f600a)

  


Veldu Ný Próf (e. New Quizzes) (1) og hakaðu við að kerfið muni eftir vali þínu á próf í þessu námskeiðið (e. Remember my choice for this course) (2) og smelltu á Velja (e. Submit) (3).

ATH. Þessi gluggi kemur ekki upp þegar valið er að muna eftir vali þínu á þessu námskeiðið (e. Remember my choice for this course). Þá opnast valið sjálfkrafa við gerð á næsta prófi.

![image](media://375c0c8a-f565-4cd3-baa4-cef3eacfcf57)

  


Hér þarf síðan að velja nafn á prófið (1), skilgreina stigafjöldann (2), velja í hvaða hóp prófið er í (3), ákveða hvernig einkunn birtist nemendum (4) og ef próf á ekki að gilda til lokaeinkunnar þá þarf að haka við þennan reit (5).

![image](media://22d39d34-8eb8-428d-9c93-1f19cb381164)

  


Næst þarf að velja hverjir eiga að taka prófið (1), velja skiladag (2) og ákveða hvort prófið eigi að vera aðgengilegt í ákveðinn tíma (3).

![image](media://29d2ac43-ad29-4d3d-abb9-0c1585868eec)

  


# Búa til spurningar

Smelltu á Vista (e. Save) ef allar stillingar eru tilbúnar og þú ætlar að vinna í prófinu seinna (1). Ef prófið er tilbúið fyrir nemendur þá er hægt að smella á Vista og Birta (e. Save & Publish) til að vista og birta prófið fyrir nemendum (2).

![image](media://f7d8afd4-a99b-4e01-a5fe-8d0186bad818)

  


Til þess að hefja vinnu að búa til spurningar í prófinu þarf að smella á Byggja (e. Build)

![image](media://c978c785-cba8-4186-9b1d-a0e4c1fef2a9)

  


Þá opnast rithamurinn í prófinu, hér er hægt að:

1. Gefa prófinu titil og skrifa inn upplýsingar um prófið
2. Spurningabankar
3. Niðurstöður (Hæfni í námskeiði)
4. Forskoðun
5. Yfirlit spurninga

![image](media://d185354b-1c69-4137-8b39-387eb95862bd)

  


Til að búa til spurningu, smelltu á + táknið.

![image](media://ec84a681-a062-43a3-82f4-78f9464fec6e)

  


Þá opnast gluggi þar sem hægt er að:

1. Smella hér til að velja spurningu úr spurningabanka
2. Búa til spurningu með því að velja fyrst tegund spurningar
3. Setja inn texta og búa til spurningu sem tengist textanum

![image](media://509de7b5-5a12-4113-9b48-a2cc37161034)

  


# Hanna og breyta spurningum

1. Titill á spurningu
2. Spurningin
3. Svarmöguleikar
4. Stillingar á spurningu (Bæta við rafrænni reiknivél, mismunandi stig á svör og stökka svörum)
5. Tengja við hæfniviðmið
6. Bæta spurningu við spurningabanka
7. Setja inn hversu mörg stig spurningin gefur í prófinu
8. Skrifa endurgjöf fyrir rétt- og röng svör og almenn endurgjöf

![image](media://5b8e2789-6d8d-4672-b8e3-35661289898d)

  


Smelltu á ruslatunnu táknið fyrir aftan spurninguna til að eyða henni út úr prófinu.

![image](media://648d0664-f703-41cc-a3e4-f5bb752739c6)

  


# Yfirlit spurninga


Smelltu á örina til þess að fá yfirlit spurninga í prófinu.

![image](media://162f8e71-6f13-4690-b5a8-cef55cbc0be5)

  


Í yfirliti spurnina er hægt að sjá:

1. Númer á spurningunni
2. Tegund spurningar
3. Hversu mörg stig svörin gilda
4. Upphafið á spurningunni
5. Hversu mörg stig spurningin gildir í prófinu

![image](media://c38857b4-cbc4-4950-b7e6-9f7d5ec77657)

  


1. Smelltu á textann til opna spurninguna ef þú vilt breyta/uppfæra spurninguna.
2. Hægt er færa spurningarnar í prófinu með með að smella á punktana og draga spurninguna á nýjan stað

![image](media://fe6a3e15-acd8-4eae-a9e3-66a8fb6a4d52)

  


Smelltu á Til baka (e. Return) til að fara til baka í stillingar á prófinu.

![image](media://fbeb77a1-3d27-45ea-8f08-142f2d55d9ec)