---
title: "Leiðbeinendur í þjónustunámskeiðum (PebblePad)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1222508351/Lei%C3%B0beinendur%20%C3%AD%20%C3%BEj%C3%B3nustun%C3%A1mskei%C3%B0um%20(PebblePad)"
format: markdown
---
<span style="color: #000000">Smelltu á slóðina fyrir neðan til að skrá þig inn á PebblePad.</span>  
<span style="color: #0000ff">[https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak](https://v3.pebblepad.co.uk/login/unak)</span>


Notendanafnið er netfangið þitt og lykilorð fékkstu sent í tölvupósti frá PebblePad.​ Ef að þú gleymir lykilorðinu er hægt að fara í **Forgot password** og fá sent nýtt lykilorð.​ Mundu að haka í **I have a guest account for PebblePad **til að skrá þig inn.

**Ath.​ Pósturinn frá PebblePad gæti hafa lent í Junk mail.**

![image](media://addf4afb-9af7-4790-8ec1-bb6d1d9fcae6)

  


<span style="color: #000000">Veldu viðeigandi námskeið (þjónusta iðjuþjálfa 1,2 eða 3) – það námskeið sem þú ert leiðbeinandi í.</span>  
> Macro (inline-media-image)

  


  


Þú hefur aðgengi að eyðublöðum nemandans​

- Veldu viðeigandi eyðublað í felliglugganum, t.d. **námsmarkmið **eða **mat leiðbeinanda á frammistöðu í vettvangsnámi**

![image](media://8e232f2c-9c4d-451e-b083-9717963f75e5)

  


Námsmarkmið nemenda í sama leiðsagnarhópi birtast fyrir neðan **Submission details**​.

- Til að finna markmiðsblöð þíns nemanda er einfaldast að skrifa nafn hans í leitargluggann

![image](media://00937a6a-5656-4b48-89e1-88f8aa9f2dfe)

- Í lok fyrstu viku eiga námsmarkmiðin að vera tilbúin og undirrituð af leiðbeinanda​
- Ef námsmarkmiði er breytt þarft þú að skrifa undir á nýjan leik

  


Í stöðu- og lokamati eru markmiðin rædd ​

- Þú merkir við á kvarðanum fyrir markmið​
- Þú verður að skrá þig inn á PebblePad á þínu aðgangi

![image](media://479f1798-8eed-483b-ac12-b8f01ebfac83)

  


# Mat nemanda á eigin frammistöðu í vettvangsnámi​

- Nemandi metur eigin frammistöðu í vettvangsnámi fyrir stöðu- og lokamat​
- Þar sem nemandinn er notandinn í PebblePad hefur hann ávalt aðgengi að eyðublöðunum sínum, þar á meðal að mati leiðbeinandans​
- Ætlast er til að nemendur ljúki mati á eigin frammistöðu fyrir mánudag í matsvikunni – fylli matið út á undan leiðbeinandanum​
- Þú fyllir út **mat á frammistöðu nemandans á vettvangi** rafrænt í PebblePad í matsvikunni

![image](media://a4d8eac3-c96f-4a31-ade1-4c5baf67a1f6)

  


# Mat leiðbeinanda á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi​

- Þú sækir eyðublaðið **mat leiðbeinandi á frammistöðu nemanda í vettvangsnámi** sem merkt er þínum nemanda
- Fylltu eyðublaðið út samkvæmt leiðbeiningum​
- Mundu eftir að styðjast við handbók fyrir mat á frammistöðu í vettvangsnámi í iðjuþjálfun. Hana finnur þú á Canvas síðu vettvangsnáms í starfsréttindanámi​
- Lagt er til að þú fyllir út rafræna matið í þeirri viku sem matið fer fram þannig að nemandinn þinn sé þegar búinn að fylla út sitt mat á eigin frammistöðu

![image](media://42b65fd9-c866-404c-97dc-4263dd319e32)

  


# Mat nemanda á reynslu úr  vettvangsnámi

- Nemandinn fyllir út skjalið *mat á reynslu í vettvangsnámi *fyrir lokamatið​
- Nemandinn skilar skjalinu inn í rétt vinnusvæði í PebblePad í fyrir lokamat​
- Þá getur þú nálgast skjalið undir **Submissions**
- Þegar nemandi hefur skilað getur þú vistað skjalið hjá þér með því að velja prentara og hlaðið því niður sem PDF skjali​
- Ef þú ætlar að vista skjalið, skaltu gera það strax þar sem aðgengi þínu að PebblePad verður lokað strax og vettvangsnáminu lýkur