---
title: "Ná upptöku af Zoom (e. Cloud Meeting Recordings)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1215266508/N%C3%A1%20uppt%C3%B6ku%20af%20Zoom%20(e.%20Cloud%20Meeting%20Recordings)"
format: markdown
---
Þegar búið er að slökkva á upptöku í fundi þá líður smástund þar til þú færð tölvupóst frá Zoom. Í tölvupóstinum er hlekkur að upptöku fyrir fundinn. Smelltu á efri hlekkinn, sem er aðeins fyrir eiganda fundar (e. For host only).  
> Macro (inline-media-image)



  


Hlekkurinn mun leiða þig inn á svæðið þitt á heimasíðu Zoom.  
> Macro (inline-media-image)



  


Hægt er að hlaða niður upptöku af fundinum með því að:

- Hlaða niður öllum útgáfum af upptökum af fundinum (e. Download, 3 files)
- Afrita hlekk að fundinum (e. Copy shareable link)
- Eyða upptökunni (með því að smella á ruslafötuna)

Til að velja eina útgáfu af fundinum til að hlaða niður, þá þarf að smella á > Macro (inline-media-image)

(e. Download) við þá útgáfu sem þú vilt ná í:

- Upptakan sýnir aðeins mynd af þeim sem er að tala (e. Speaker view)
- Upptakan sýnir mynd af öllum sem eru á fundinum (e. Gallery view)
- Hljóðskrá, engin mynd (e. Audio only)
- Textaskrá frá fundum. Þessi eiginleiki virkar ekki fyrir íslensku (e. Audio transcript)

![image](media://9f165e09-73db-43a4-855f-e0a4f4fa7b6a)

  


Þegar smellt er á > Macro (inline-media-image)

 þá hleðst upptakan niður í tölvuna.  
> Macro (inline-media-image)