---
title: "Deila skjá/forriti með öðrum á fundi (e. screen share)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1205567591/Deila%20skj%C3%A1%2Fforriti%20me%C3%B0%20%C3%B6%C3%B0rum%20%C3%A1%20fundi%20(e.%20screen%20share)"
format: markdown
---
Þegar fundurinn er í gangi, smelltu á Share Screen. 

![image](media://0d47e3f8-f273-4664-b510-7c724591f059)


Næst þarftu að velja hvað þú vilt deila með öðrum. Ef þú ætlar að sýna myndband þá þarftu að haka í Share Computer Audio og Optimize for full screen video clip. Hægt er að deila tölvuskjánum í heild eða forriti sem er opið, t.d. PowerPoint.

  


Þegar búið er að velja skjáinn/forritið sem á að deila, smelltu á Share til að hefja sýninguna.

![image](media://b05eb4aa-11ac-4c80-b529-b8d9f5e79eb7)

  


Þegar þú ert að deila skjá þá kemur nýr gluggi, þennan glugga er hægt að færa til á skjánum. Einnig er hægt að:

- Taka hljóðið af hljóðnemanum (e. Mute)
- Stöðva deilingu á skjá (e. Stop Share)
- Ef þú er eigandi fundar, þá er hægt að skoða þátttakendur í fundinum (e. Manage Participants)
- Deila nýjum skjá (e. New Share)
- Stöðva deilingu tímabaundið (e. Pause Share)
- Teikna á skjá (e. Whiteboard)


Þegar smellt er á More koma eftirfarandi eiginleikar.

- Opna spjallsvæði (e. Chat)
- Bjóða öðrum á fundinn (e. Invite others)
- Taka upp fundinn, í tölvuna eða skýið (e. Record on this Computer/Record to the Cloud)
- Deila hljóði úr þinni tölvu (e. Share computer sound)
- Stilla deilingu fyrir myndband, þetta er virkjað þegar á að sýna myndband á fundi í betri gæðum (e. Optimize Share for Full-screen Video Clip)
- Loka fundinum (e. End Meeting)

![image](media://d160cec3-7b5b-4dfb-a321-fcb582ae7f08)