---
title: "Búa til Zoom fund í Canvas"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1205567335/B%C3%BAa%20til%20Zoom%20fund%20%C3%AD%20Canvas"
format: markdown
---
Til þess að búa til fund þá þarf að fara inn í námskeiðið sem fundurinn á að vera. Zoom ætti að að vera í listanum til vintri.  
> Macro (inline-media-image)



  


Ef þú sérð ekki Zoom í listanum farðu þá í Settings/Stillingar og Navigation/Flýtileiðir. Skrunaðu niður á síðunni, þar ætti Zoom flipinn að vera.  
> Macro (inline-media-image)

  
  
Farðu með músinu yfir Zoom flipann, vinstri smella og halda inni, og dragðu flipann upp í listann að ofan.  
> Macro (inline-media-image)



  
Þegar þú hefur smellt á Save/Vista er búið að virkja Zoom í námskeiðinu.  
> Macro (inline-media-image)



  
Smelltu á Authenticate til að tengja Zoom aðganinn þinn við námskeiðið.  
> Macro (inline-media-image)

  
  
Smelltu á Authorise.  
> Macro (inline-media-image)

  
  
Núna er Zoom tengt við námskeiðið. Hér getur þú búið til fund fog haft umsjón yfir öllum fundum sem tengjast námskeiðinu.  
> Macro (inline-media-image)

  
  
  


Þegar smellt er á Schedule a New Meeting þá koma upp ýmsar stillingar.

- Gefðu fundinum nafn (e. **Topic**)
- Stilltu hvenær fundurinn á að byrja (e. **Start**)
- Veldu hvað fundurinn á að vera lengi (e. **Duration**)
- Tölvan stillir sjálfkrafa á hvaða tímasvæði fundurinn er, miðað við stillingar í tölvunni sem fundurinn er búinn til (e. **Time Zone**)
- Hægt er að láta fundinn endurtaka sig með reglulegu millibili (e. **Recurring meeting**)
- Skilda þátttakendur að skrá sig á fundinn (e. **Required**)

![image](media://103b9ea0-5528-473f-a3aa-5ef9b8c7f729)

  


- Stillingar á myndbandi (e. **Video**)
  - Hægt er að stilla hvort myndavélin fari í gangi þegar fundur hefst. Alltaf er hægt að slökkva og kveikja á myndvél á meðan fundur stendur yfir (e. **Host**)
  - Einnig er hægt að stilla hvort myndavél fari í gangi hjá öðrum þátttakendum, þegar þeir koma á fundinn. Þátttakendur geta alltaf slökkt og kveikt á myndvél á meðan fundur stendur yfir (e. **Participant**)
- Stillingar á hljóði (e. **Audio**)
  - Mælt er með að heimila síma og hljóð úr tölvu í þessum stillingum (e. **Telephone and Computer Audio**)
- Stillingar á fundinum (e. **Meeting Options**)
  - Læsa fundinum með lykilorði (e. **Require meeting password**)
  - Leyfa þátttakendum koma á fundinn á undan eiganda (e. **Enable join before host**)
  - Slökkt er á hljóðnema þátttakenda þegar þeir koma á fundinn (e. **Mute participants on entry**)
  - Hýsa fundinn á þínu Zoom númeri, ef þetta er ekki valið þá býr Zoom til sérstakt númerið fyrir fundinn (e. **Use Personal Meeting ID**)
  - Taka fundinn sjálfkrafa upp, annað hvort beint í tölvuna eða í skýið (Panopto) (e. **Record the meeting automatically**)
- Skipa annan aðila sem stjórnanda á fundi (e. **Alternative hosts**)

![image](media://9d1d5a7a-e4a1-4066-8252-ad0cab73320a)

Muna svo að vista í lokin.  
> Macro (inline-media-image)



  


Þegar búið er að smella á Save þá kemur síða með upplýsingum um fundinn.  
> Macro (inline-media-image)



  


Fundir eru síðan aðgengilegir nemendum á tveimur mismunandi stöðum í námskeiðinu.

Á upphafssíðu námskeiðs undir To-do/Verkefnalisti og í Calander/Dagatali.  
> Macro (inline-media-image)

> Macro (inline-media-image)



  
------------------------------  
  


  


### **Að bæta við Zoom-fundi í Modules/Námsefni**

Veljið + í gráu stikunni

![image](media://fdf563fa-8854-4ba9-9239-4fe739a0a569)

Veljið External tool

![image](media://6f8baa14-e31f-490e-a30c-6279008259d8)

  


Þar undir Zoom og Add item (rauði hnappurinn)

  


![image](media://644d389c-1ccd-4dc1-a9ca-be6511fea6e3)

  


Þá er þetta komið svona, ýtið síðan á fundinn til að stilla dagsetningar og þannig eins og sýnt var hér að ofan.

![image](media://2de1aaaf-60e3-43f1-8578-c2295e0859da)

  


Eins og hér að neðan

  


![image](media://163d3b05-04a9-4879-8c66-f55d4e5065c2)