---
title: "Þátttakendur í fundarherbergi (e. Breakout Room)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1199245053/%C3%9E%C3%A1tttakendur%20%C3%AD%20fundarherbergi%20(e.%20Breakout%20Room)"
format: markdown
---
Þegar stjórnandi fundar ætlar að skipta þátttakendum niður í mismunandi fundarherbergi, þá birtist gluggi í Zoom forritinu. Smelltu á **Join** til að fara inn í herbergið.  
> Macro (inline-media-image)

  
  
Ef þú smellir á Later, þá getur þú farið seinna í herbergið með því að smella **Breakout Rooms**.  
  


  


Smelltu síðan á Join Breakout Room til að fara inn í herbergið.  
> Macro (inline-external-image)



  


Inn í herberginu eru mjög svipaðar stillingar og á venjulegum Zoom fundi.

- Stilla hljóðanemann (e. **Mute/unmute**)
- Stilla myndavélin (e. **Start/Stop Video**)
- Deila skjánum (e. **Share screen**)
- Spjall (e. **Chat**)
- Taka upp fundinn (e. **Record**)
- Óska eftir aðstoð hjá skipuleggjanda fundar (e. **Ask for Help**)
  
  - Eftir að hafa smellt á Ask for Help, þá þarf að staðfesta að bjóða skipuleggjanda funar í fundarherbergið.

  


Hægt er að taka upp einstaka fundi í hverju fundarherbergi. En fyrst þarf að biðja skipuleggjanda fundar um leyfi til þess að taka upp, nema þegar skipuleggjandi er nú þegar búinn að heimila fyrir upptökur.  
> Macro (inline-external-image)



  
Til að hefja upptöku, smelltu á **Record** hnappinn í Zoom. Hægt er að setja upptöku á pásu og stöðva hana með því að smella á **Pause/Stop Recording**.  
> Macro (inline-external-image)

  
  
Efst í vinstra horninu í Zoom er mynd sem sýnir að upptaka sé í gangi. Þar er einnig hægt að setja á pásu og stöðva upptöku.  
> Macro (inline-external-image)

  
  
Til að fara úr fundarherbergi er nóg að smella á Leave Breakout Room og þá fara notendur inn á aðal Zoom fundinn.  
> Macro (inline-external-image)



Stundum stillir skipuleggjandi fundar tímamörk á fundarherbergin. Þegar sú stilling er virk þá enda fundir annað hvort snögglega eða það byrjar að telja niður frá 60 sekúndum.