---
title: "Búa til Zoom fund í forritinu"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1199245050/B%C3%BAa%20til%20Zoom%20fund%20%C3%AD%20forritinu"
format: markdown
---
Opnaðu Zoom forritið og smelltu á Schedule.

![image](media://64b137ba-6213-4655-8ff0-854140347a24)

  
  
Þá opnast nýr gluggi með ýmsum möguleikum á stillingum fyrir fundinn.

![image](media://7a1e0350-1ffe-47ea-8fa5-28dcfad627cd)

- Gefðu fundinum nafn (e. **Topic**)
- Stilltu hvenær fundurinn á að byrja (e. **Start**)
- Veldu hvað fundurinn á að vera lengi (e. **Duration**)
- Tölvan stillir sjálfkrafa á hvaða tímasvæði fundurinn er, miðað við stillingar í tölvunni sem fundurinn er búinn til (e. **Time Zone**)
- Hægt er að láta fundinn endurtaka sig með reglulegu millibili (e. **Recurring meeting**)
- Stillingar á myndbandi (e. **Video**)
  - Hægt er að stilla hvort myndavélin fari í gangi þegar fundur hefst. Alltaf er hægt að slökkva og kveikja á myndvél á meðan fundur stendur yfir (e. **Host**)
  - Einnig er hægt að stilla hvort myndavél fari í gangi hjá öðrum þátttakendum, þegar þeir koma á fundinn. Þátttakendur geta alltaf slökkt og kveikt á myndvél á meðan fundur stendur yfir (e. **Participant**)
- Stillingar á hljóði (e. **Audio**)
  - Mælt er með að heimila síma og hljóð úr tölvu í þessum stillingum (e. **Telephone and Computer Audio**)
- Stillingar á fundinum (e. **Options**)
  - Undir almennum stillingum (e. Options) er hægt að velja á milli þess að birta fund á dagatali (e. **List on Public Calender**) og læsa fundinum með lykilorði (e. **Require meeting password**)
- Ítarlegri stillingar (e. **Advanced Options**)
  - Leyfa þátttakendum koma á fundinn á undan eiganda (e. **Enable join before host**)
  - Slökkt er á hljóðnema þátttakenda þegar þeir koma á fundinn (e. **Mute participants on entry**)
  - Hýsa fundinn á þínu Zoom númeri, ef þetta er ekki valið þá býr Zoom til sérstakt númerið fyrir fundinn (e. **Use Personal Meeting ID**)
  - Taka fundinn sjálfkrafa upp, annað hvort beint í tölvuna eða í skýið (Panopto) (e. **Record the meeting automatically**)
  - Skipa annan aðila sem stjórnanda á fundi (e. **Alternative hosts**)
- Hægt er að bæta Zoom fundinum inn á dagatal og bjóða þannig þátttakendum á fundinn (e. **Calendar**)