---
title: "Skipta Zoom fundi niður í herbergi (e. Breakout Rooms)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1199245042/Skipta%20Zoom%20fundi%20ni%C3%B0ur%20%C3%AD%20herbergi%20(e.%20Breakout%20Rooms)"
format: markdown
---
Þegar fundur er í gangi, smelltu á **Breakout Rooms**.  
> Macro (inline-media-image)

  
  
Þá opnast nýr gluggi. Hér er hægt stilla hvað á að búa til mörg herbergi og hvað eiga margar í að vera í hverju herbergi. Þú getur skipt niður sjálfkrafa (e. **Automatically**) eða velja hver fer í hvaða herbergi (e. **Manually**). 

![image](media://bec97d0b-7a99-4c42-a0ad-c81464ef1541)

  
  
Þá býr Zoom til herbergin en fundurinn hefst ekki alveg strax. Núna þarf að velja hvort þú vilt að Zoom skipti notendum niður sjálfkrafa í herbergi (e. **Move all participants into breakout rooms automatically**). Ef þessi valkostur er ekki valinn, þá þurfa notendur að raða sér sjálfir í herbergin. Hægt er að leyfa notendum að fara úr herberginu yfir í aðal Zoom fundinn með því að haka í **Allow participants to return to the main session at any time**. Ef þessi eiginleiki er ekki valinn þá þarf fundarstjóri/eigandi Zoom fundsins að loka herbergjunum til þess að notendur komist aftur í aðal Zoom fundinn. Auk þess er að stilla hversu lengi herbergin eiga að vera opin (e. **Breakout rooms close automatically after x minutes**) og biðja Zoom um að senda tilkynningu þegar herbergin lokast (e. **Notify me when the time is up**). Loks er hægt að láta Zoom telja niður hversu margar sekúndur eru þangað til að herbergið lokast (e. **Countdown after closing breakout rooms**).

![image](media://2ff64f40-2ab1-4d1d-9dd9-a05464e6f25a)

  
  
Til þess að raða notendum niður í herbergi þá smellir þú á **Assign** og velur þann sem á að fara í herbergið.

![image](media://d26a6489-75c7-4f40-8848-c29f89f05f6f)

  
  
Þegar notandi hefur verið settur í herbergi þá birtist tala í staðin fyrir **Assign**, sem sýnir fjölda notenda í herberginu.  


![image](media://e2df5d01-d911-459e-9c29-34a30c5f55e4)

  
  
Hægt er að færa til notenda á milli herbergja, með því að smella á nafn notanda, velja **Move to** og síðan herbergið sem notandinn á að fara í.

![image](media://d2273fd7-d1ed-41c4-b478-b86591722840)

  
  
Auk þess er hægt að víxla notendum milli herbegja með því að velja **Exchange**.

![image](media://5501c1e9-2b93-4ecd-87b3-bdf611476e80)

  
  
Einnig er hægt að:

- Eyða út herbergi (e. **Delete Room**)
- Eyða út öllum herbergjum og búa til ný (e. **Recreate**)
- Bæta við herbergi (e. **Add a Room**)
- Opna öll herbegi (e. **Open All Rooms**)

Eigandi Zoom fundar, sem hefur skipt notendum niður í herbergi, getur síðan farið hvenær sem er í hvert herbegi. Það er gert með því að smella á **Join** á því herbergi sem á að tengjast. Til að fara úr herberginu þá smellir þú á **Leave**.

![image](media://22cde382-4ded-43f5-a7f9-7e60c75fd6da)

  
  
Þeir sem eru í herbergjunum geta óskar eftir hjálp hjá þeim sem á Zoom fundinn.

![image](media://5121ea1a-618a-4add-a52d-7ab67b6189b6)

  
  
Þá birtist svona skilaboð hjá eiganda Zoom fundinum.

![image](media://610319bc-7242-4003-b4ec-cc9e58f41767)

  


Eigandi Zoom fundsins getur einnig sent skilaboð í herbergin.

![image](media://7f786fd0-2767-4713-a6a9-a7388a2a3c0b)