---
title: "Notkun á Zoom forritinu í tölvu (PC og Apple)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1199245038/Notkun%20%C3%A1%20Zoom%20forritinu%20%C3%AD%20t%C3%B6lvu%20(PC%20og%20Apple)"
format: markdown
---
Opnaðu forritið í tölvunni og smelltu á **Sign In**.

![image](media://68192e53-4773-4e92-a69f-1b2cb7499228)

   
  
Skráðu þig inn í forritið með því að nota unak.is tölvupóstinn og lykilorðið sem þú valdir þegar notandi þinn var búinn til.

![image](media://8a82b0f8-5902-41ee-ac10-3e0d6e839561)

  
  
Eftir inngskráningu þá opnast nýr gluggi með eftirfarandi eiginleikum:

![image](media://74ff6c77-98b2-4f12-ad7b-bc88d29440b3)

Hefja fund (**New Meeting**): Þegar smellt er á örina kemur felligluggi þar sem hægt er að velja þitt fundarherbergi. Ef smellt er beint á **New Meeting** þá verður til nýtt og tímabundið fundarrými. Mundu að þú þarft alltaf að deila númerinu eða hlekknum að fundinum.

![image](media://b9564166-e1b4-4f13-8da3-72aa097f5aee)

  
Tengjast fundi (**Join**): Ef þú ert með númer að fundarherbergi þá smellir þú á **Join**, skrifar inn númerið að fundinum og tengist þannig fundinum.

![image](media://da573f75-8c83-48fe-92b2-2992c1fb7d26)

  
Búa til fund (**Schedule**): Skipuleggja fund, t.d. fyrir námskeið. Mundu að þú þarft alltaf að deila númerinu eða hlekknum að fundinum.

![image](media://1bdf47b1-7e1e-47e9-8289-33f335c0a508)

  
  
Deila skjá (**Share Screen**): Hægt er að tengjast fundi á Zoom og aðeins deila skjánum að tölvunni.

![image](media://33fb34ef-39a2-47ab-b317-40a2084c7a2d)

  
  
Veldu hvað þú vilt deila á Zoom fundinum.

![image](media://48ae8ef4-15f0-4241-a499-03b4700c2a5c)