---
title: "Aðal valmynd Canvas (e. global navigation menu)"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1191804649/A%C3%B0al%20valmynd%20Canvas%20(e.%20global%20navigation%20menu)"
format: markdown
---
Efst á síðunni kemst þú í stillingar á þínum reikningi. Hér getur þú m.a. uppfært upplýsingar um þig, breytt tungumáli á kennslukerifnu, stillt tilkynningar og margt fleira.

![image](media://02ad81ca-1222-42d5-a482-1f63b21c2e88)

  
Í skjáborðinu hefur þú sýn yfir hvað er um að vera í þeim námskeiðum sem þú ert að kenna. Einnig sést hér hvaða verkefni eru í gangi og hvað er á næstunni í dagatalinu.

![image](media://3375dab4-e192-4a1e-b2d1-f9d4629a999c)

  


Hér getur þú skoðað námskeiðin sem þú hefur aðgang að, þegar smellt er á Námskeið þá opnast nýr felligluggi með lista af öllum þínum námskeiðum. Til að fara inn í námskeið, smelltu þá á nafn þess. Til að skoða öll námskeið, smelltu þá á Öll námskeið.

![image](media://f198990c-49fa-4165-bc7b-9b605fd67bb0)

  


Allir hópar sem þú hefur aðgengi að er hægt að sjá hér. Til að skoða alla hópa, smelltu þá á Allir hópar.

![image](media://d415b7e3-3203-4ee6-b06e-d2294bd117c3)

  


Í dagatalinu eru dagsetningar skilaverkefna fyrir öll námskeiðin sem þú ert að kenna.

![image](media://83738a07-f8ae-4e7a-aeba-4a8766ae09c3)

  


Í innhólfinu finnur þú öll skilaboð sem og samskipti þín við nemendur í kennslukerfinu.

![image](media://d3287c15-1f5e-464b-ab7c-d6500e6af42c)

  


Smelltu hérna (1) til að fá m.a. flýtileiðir á þjónustuborð- og leiðbeiningarsíðu KHA.  


![image](media://9691b8ec-26f6-4ba6-b2d6-1af088652dbe)

  
Hægt er að minnka og stækka aðalvalmyndina með því að smella á örina, sem er neðst á síðunni.

![image](media://756762f9-3d8b-4c3c-b974-9b7869f8e862)

![image](media://b40ba33f-6ce0-4968-8a09-0244e4e18e66)