---
title: "Sennheizer þráðlausir hljóðnemar"
canonical: "https://hjalp.unak.is/space/LEIB/1186660000/Sennheizer%20%C3%BEr%C3%A1%C3%B0lausir%20hlj%C3%B3%C3%B0nemar"
format: markdown
---
Í hátíðarsal og báðum hallandi sölunum eru þráðlausir hljóðnemar frá Sennheizer. Þá, ásamt auka rafhlöðu á alltaf að geyma í hleðslustöðinni sem þeim fylgja og er á borðinu. Það þarf ekki að slökkva á þeim þegar þeir eru settir í hleðslu. Þá eiga þeir að kveikja á sér sjálfkrafa þegar þeir eru teknir úr hleðslu.

Hins vegar kveikja þeir **ekki** sjálfkrafa á sér ef slökkt hefur verið á þeim áður en þeir voru settir í hleðslu.

![image](media://80c56fac-ad31-41d9-b122-40252055852d)


Til að kveikja eða slökkva á þeim, er rauða takkanum á hliðinni haldið inni í smá stund. Þegar kveikt er á sendinum lýsir rautt ljós ofan á sendinum sem breytist í grænt þegar hann er búinn að para sig við móttakarann og tilbúinn til notkunar. Ef það lýsir gult, þá er sendirinn á „Mute“. Það er takkinn ofan á sendinum sem hægt er að renna til hliðar. Ljósið á sendinum á sem sagt að lýsa **grænt **þegar hann er tilbúinn til notkunar.

- Rautt = Ekkert samband
- Gult = Mute (slökkt á hljóði)
- Grænt = Tilbúinn til notkunar

![image](media://ba4bad40-7d06-43c0-9323-439b6e301458)


Sendarnir og rafhlöðurnar passa bara á einn veg í hleðslustöðvarnar. Vinsamlegast þrýstið þeim ekki niður af afli, það á eingöngu að þurfa að ýta þeim laust niður. Ef rauða hleðsluljósið kviknar ekki, snúa þeir að öllum líkindum öfug. Þá þarf að snúa þeim við og setja þá í aftur. Rafhlöðurnar fara í hleðslustöðina eins og þegar þær væru á þráðlausa sendinum, það er:

**Textinn Sennheizer á að snúa rétt og vera hægra megin við hleðsluljósið.**

![image](media://c5da6e35-736d-4b03-bc82-8c6b723ca2f8)


Til að taka rafhlöðurnar úr sendunum er þrýst á **báða** svörtu takkana á hliðinni, og draga rafhlöðuna niður á meðan tökkunum er haldið inni. Til að setja rafhlöðuna í er hún lögð í hólfið fyrir rafhlöðuna um það bil fyrir miðju, og þrýst jafnt varlega upp þar til heyrist smellur. Þá á hún að vera læst við sendinn.

> Macro (inline-media-image)

> Macro (inline-media-image)




Til að slökkva á hljóðinu er „Mute“ rofinn færður til svo að græna ljósið breytist í **gult.** Þá er slökkt á **öllu **hljóði frá hljóðnemanum. Vinsamlegast sjáið til að færa rofann aftur til bara svo **græna** ljósið lýsi áður en byrjað er að tala.  

![image](media://ac01fb28-42f5-4450-97d1-885793f34cc3)

![image](media://cfabd41d-ab01-4a95-aaa6-794e2504c6f9)